Rekstur ÍLS mikið „umhugsunarefni“ Magnús Halldórsson skrifar 7. júní 2012 10:18 Helgi Teitur Helgason, framkvæmdastjóri viðskiptabanka Landsbankans. „
Rekstur og tilvist Íbúðalánasjóðs hlýtur að vera umhugsunarefni fyrir Íslendinga. Alkunna er að sjóðurinn er illa staddur, svo ekki sé meira sagt, hann er rekinn með aðfinnsluverðri ríkisábyrgð, en býður þrátt fyrir það lökust kjör á markaði og það virðist taka sjóðinn heila eilífð að bjóða þær vörur sem markaðurinn kallar eftir," segir Helgi Teitur Helgason, framkvæmdastjóri viðskiptabanka hjá Landsbankanum hf., um starfsemi Íbúðalánasjóðs og þá gagnrýni sem komið hefur frá Sigurði Erlingssyni, framkvæmdastjóra ÍLS, um óverðtryggð lán bankanna. Helgi Teitur segir að óverðtryggð lán bankanna á föstum vöxtum, til þriggja og fimm ára, séu þannig úr garði gerð að lántakendur viti með vissu hver greiðslubyrðin verði og geti síðan metið stöðu mála á nýjan leik að þessum þremur eða fimm árum liðnum. Þá segir Helgi Teitur ennfremur: „Það vekur einnig undrun hvernig framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs getur talað fyrir hag neytenda þegar hann býður sjálfur eingöngu verðtryggð lán með mun hærri vöxtum en bankar gera. Landsbankinn býður nú verðtryggð lán til íbúðakaupa með 3,75% vöxtum. Íbúðalánasjóður býður lægst 4,20%. Þetta þýðir með öðrum orðum að jafnvel þó svo að viðskiptavinir Landsbankans myndu ekki sætta sig við óverðtryggða vexti eftir að bindingu þeirra lyki eftir þrjú eða fimm ár, þá gætu þeir fengið mun betri verðtryggð kjör í bankanum sínum en hjá Íbúðalánasjóði – og það er ekkert uppgreiðslugjald hjá Landsbankanum ólíkt því sem er hjá Íbúðalánasjóði." Sjá má grein Helga Teits hér.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Fleiri fréttir Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Sjá meira