LeBron í Kareem og Wilt klassa í einvíginu á móti Boston Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júní 2012 12:00 LeBron James og Dwyane Wade á blaðamannafundi eftir leikinn í nótt. Mynd/AP
LeBron James átti magnað einvígi á móti Boston Celtics í úrslitum Austurdeildarinnar og skilaði sínu liði í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar í körfubolta með frábærri frammistöðu í leikjum sex og sjö. Hann var samtals með 76 stig og 27 fráköst í þessum tveimur leikjum sem Miami vann báða og komst í lokaúrslitin á móti Oklahoma City Thunder. LeBron James var með 33,6 stig og 11 fráköst að meðaltali í einvíginu og hitti úr 52,7 prósent skota sinna utan af velli. Það hafa aðeins tveir aðrir leikmenn í sögu úrslitakeppni NBA náð slíkum tölum í sjö leikja seríu, það er yfir 33 stig, 11 fráköst og 50 prósent skotnýtingu. Þeir sem um ræðir eru að mörgum taldir vera tveir bestu miðherjar sögunnar. Wilt Chamberlain náði þessu með San Francisco Warriors í úrslitum Vesturdeildarinnar 1964 (38.6 stig, 23.4 fráköst og 55.9 skotnýting á móti St. Louis Hawks) og Kareem Abdul-Jabbar gerði þetta með Los Angeles Lakers í undanúrslitum Vesturdeildarinnar árið 1977 (37.1 stig, 18.7 fráköst og 60.7 prósent skotnýting á móti Golden State). LeBron James komst líka í annan fámennan hóp með því að fylgja eftir 45 stigum og 15 fráköstum í leik sex með því að skila 33 stigum og 12 fráköstum í leik sjö. Aðeins þrír aðrir hafa náð að lágmarki slíkum tölum í bæði leikjum sex og sjö í úrslitakeppni NBA-deildarinnar. Shaquille O'Neal og Kobe Bryant gerðu það báðir með Los Angeles Lakers á móti Sacramento Kings árið 2002 og Bob Pettit náði þessu árið 1961 með St. Louis Hawks á móti Lakers.
NBA Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport JD Vance með þrjú hundruð öryggisverði á Ólympíuleikunum Sport Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Enski boltinn Fær ekki að keppa á Ólympíuleikunum af því að hún er kona Sport Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Fótbolti Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Handbolti Ólympíumeistarinn með skilaboð til Trump: „Ég er ekki trans. Ég er kona“ Sport Fleiri fréttir Segir íslensk félög búin að eyða meira en milljarði í erlenda leikmenn í vetur Segir Grikkjanum haldið í gíslingu Fórnuðu Luka Doncic fyrir hann en Davis náði aðeins að spila 31 leik „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ „Þá er þetta munurinn á liðunum“ Uppgjörið: Tindastóll - Grindavík 74-99 | Grindavík eltir Keflavík í úrslit Martin með ellefu stig í magnaðri endurkomu Alba Berlin Uppgjörið: Keflavík - Hamar/Þór 82-77 | Keflvíkingar í bikarúrslit Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið „Við þekkjum umhverfið allavega betur“ James Harden skipt til Cleveland og titillíkur Cavaliers aukast „Vitum hvernig Stjarnan spilar“ Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 107-110 | Stjarnan í úrslit eftir háspennu í framlengdum leik KR - Tindastóll 85-87 | KR-ingar í úrslit eftir háspennu „Byrjunin verður gríðarlega mikilvæg“ „Þeir setja pressu á alla og gera allt óþægilegt“ KR-ingur að fara á kostum með einu besta körfuboltaliði Bandaríkjanna Stólarnir fóru bara allir í fýlu saman og það er óafsakanlegt Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Martin fagnaði mikilvægum sigri eftir mistök toppliðsins LeBron James valinn í Stjörnuleikinn 22. árið í röð Finni á Krókinn og Þór skiptir um Kana Efins um Pargo-skiptin: „Held að þetta sé ekki rétt hjá þeim“ Ekkert lát á sigurgöngu Tryggva og félaga Paul George dæmdur í 25 leikja bann Sparkaði í og trampaði á mótherja Pargo snýr aftur og klárar tímabilið með Grindavík Uppgjörið: Þór Þ - Keflavík 78 - 98 | Keflavíkurhraðlestin brunaði heim með öll stigin Shabazz látinn fara frá Grindavík Sjá meira