James á sama aldursári og Jordan þegar hann vann fyrsta titilinn 1991 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. júní 2012 21:30 Michael Jordan með bikarinn í júní 1991. Mynd/Nordic Photos/Getty
LeBron James er í fyrsta sinn á ferlinum aðeins einum sigri frá NBA-meistaratitlinum sem hann hefur dreymt um í níu tímabil. Miami Heat tekur á móti Oklahoma City Thunder í fimmta leik úrslitaeinvígsins. Miami er búið að vinna þrjá síðustu leiki og vantar því bara einn sigur í síðustu þremur leikjunum. Fimmti leikurinn fer fram í kvöld og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Útsendingin hefst klukkan eitt eftir miðnætti. Það er athyglisvert að bera LeBron James saman við Michael Jordan sem líkt og James var fyrir löngu búinn að afreka allt á sínum ferli áður en hann náði loksins að vinna titilinn. Svo skemmtilega vill til að James er nú á 28. aldursári alveg eins og Jordan þegar His Airness vann fyrsta titilinn af sex með Chicago Bulls liðinu árið 1991. James er reyndar nokkuð yngri. Jordan vann titilinn þegar hann var 28 ára, 3 mánaða og 26 daga gamall en James er 27 ára, 5 mánaða og 22 daga gamall í dag. Þegar Jordan varð fyrst meistari, þá hafði hann tvisvar verið kosinn besti leikmaður tímabilsins, fimm sinnum verið stigahæstur, komist fimm sinnum í úrvalslið tímabilsins og fjórum sinnum í varnarlið ársins. James hefur þrisvar sinnum verið kosinn besti leikmaður NBA-deildarinnar og einu sinni verið stigahæsti leikmaður deildarinnar. Hann var í vor valinn í sjötta sinn í lið ársins og komst jafnframt í fjórða sinn í varnarlið ársins. Michael Jordan varð reyndar meistari á sínu sjöunda tímabili (James er á sínu níunda) og fagnaði titlinum í sínum 579. leik í NBA-deildinni (70. í úrslitakeppni). James er aftur á móti að spila sinn 804. NBA-leik í kvöld þar af þann 115. í úrslitakeppni. Jordan var búinn að vinna þrjá meistaratitla þegar hann spilaði sinn 804. leik vorið 1995 en hann var þá nýkominn aftur í NBA-deildina eftir hafnarboltaævintýrið sitt. Jordan varð meistari þrjú ári í röð frá 1991 til 1993 og svo aftur þrjú ár í röð frá 1996 til 1998.
NBA Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira