Blindfullur Jason Kidd keyrði á símastaur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. júlí 2012 23:30 Kidd og Paula Abdul á góðgerðarsamkomunni á sunnudag. Nordicphotots/Getty
Körfuknattleiksmaðurinn Jason Kidd lenti í umferðarslysi nærri heimili sínu á Long Island í New York-fylki aðfaranótt sunnudags. Bandarískir fjölmiðlar greina frá þessu. Kidd hefur verið mikið í fréttum undanfarna daga enda skrifaði leikstjórnandinn 39 ára nýverið undir samning við New York Knicks í NBA-deildinni. Bifreið Kidd, Cadillac Escalade, lenti á símastaur og hafnaði á endanum úti í skógi. Lögreglan var kölluð út rétt fyrir tvö eftir miðnætti og hann fluttur á sjúkrahús í nágrenninu en meiðsli hans voru minniháttar. Þvínæst var hann færður á lögreglustöðina þar sem hann var kærður fyrir að aka undir áhrifum. Fyrstu fréttir af slysinu voru þess efnis að Kidd hefði verið á heimleið eftir góðgerðarkvöldverð. Síðar virðist sem Kidd hafi farið beint af góðgerðarsamkomunni út að skemmta sér. Heimildum ber ekki saman um hvort Kidd hafi komist útaf skemmtistaðnum óstuddur en ljóst er að hann þótti ekki í ökuhæfu ástandi. Á blaðamannafundi í síðustu viku sagðist Kidd spenntur yfir því að geta miðlað af reynslu sinni til hins unga Jeremy Lin sem sló í gegn á síðustu leiktíð. Hvort Kidd ætli að miðla af reynslu sinni utan vallar til Lin á eftir að koma í ljós.
NBA Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira