Styttist í endurkomu Spánverjans Ricky Rubio 26. nóvember 2012 18:15 Ricky Rubio gæti leikið á ný með Minnesota Timberwolves í lok þessa árs eða byrjun þess næsta. AP
Gengi Minnesota Timberwolves í NBA deildinni hefur ekki verið gott að undanförnu en liðið hefur tapað 5 leikjum í röð. Meiðsli lykilmanna hafa sett svip sinn á gengi Minnesota en það gæti farið að birta til hjá stuðningsmönnum Minnesota á næstu vikum. Spænski leikstjórnandinn Ricky Rubio er væntanlegur í liðið á ný en hann sleit krossband í hné í byrjun mars á þessu ári. Talið er að Rubio gæti leikið með liðinu í lok desember eða byrjun janúar á næsta ári. Hann fer í skoðun hjá sérfræðingnum sem framkvæmdi hnéaðgerðina í þessari viku og að því loknum verður ákvörðun tekin um framhaldið. „Ég vona að ég fái góðar fréttir en maður veit aldrei," sagði Rubio við staðarblað í Minnesota áður en hann hélt til Kaliforníu til þess að hitta sérfræðinginn. Rick Adelman þjálfari Minnesota segir að Rubio hafi staðið sig gríðarlega vel með liðinu á þeim tíma sem hann var heill heilsu á síðasta tímabili. Þar hafi beittur varnarleikur Spánverjans komið mest á óvart en hann er þekktastur fyrir frábærar stoðsendingar og skemmtileg tilþrif í sóknarleiknum. „Hann náði að halda sóknarleikmanninum fyrir framan sig og hafa stjórn á hlutunum í varnarleiknum. Hann var í hópi fimm efstu yfir stolna bolta í leik og hann var alltaf á réttum stað í liðsvörninni," sagði Adelman sem hefur mátt gera ýmsar breytingar á liði sínu vegna meiðsla lykilmanna á borð við Kevin Love og Ricky Rubio. Rubio varð annar í kjörinu yfir nýliða ársins 2011-2012. Hann skoraði 10,6 stig að meðaltali í leik, gaf 8,2 stoðsendingar, stal boltanum 2,2 sinnum að meðaltali í alls 41 leik. Hann er 22 ára gamall en hefur mikla reynslu af atvinnumennsku eftir að hafa leikið með Barcelona þar sem hann lék sinn fyrsta leik sem atvinnumaður 14 ára gamall.
NBA Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira