NBA í nótt: Kobe Bryant fór á kostum 17. desember 2012 09:08 Kobe Bryant skorar hér tvö af alls 34 stigum sínum í leiknum gegn Philadelphia í nótt. AP
Kobe Bryant fór á kostum í 111-98 sigri LA Lakers gegn Philadelphia á útivelli. Þetta var annar sigurleikur Lakers í röð en slíkt hefur liðið ekki afrekað í fjórar vikur. Bryant skoraði 34 stig. Metta World Peace tók 16 fráköst en það er persónulegt met hjá kappanum. Dwight Howard skoraði 17 stig og tók 11 fráköst fyrir Lakers, Darius Morris skoraði 15 stig sem er persónulegt met hjá kappanum en hann skoraði öll stigin í fyrri hálfleik, Chris Duhon bætti við 14 stigum. Lakers hefur nú unnið 11 leiki á tímabilinu en tapað 14. Steve Nash og Pau Gasol léku ekki með Lakers en þeir hafa verið frá vegna meiðsla. Nick Young var stigahæstyr í liði Philadelphia með 30 stig en liðið hefur unnið 12 leiki en tapað 12 á tímabilinu. Þetta var þriðji tapleikur liðsins í röð.Toronto – Houston 103-96 Jose Calderon skoraði 18 stig, gaf 14 stoðsendingar og tók 10 fráköst í liði Toronto. Þetta var annar sigurleikur liðsins í röð en slíkt hefur ekki gerst í átta mánuði. Alan Anderson skoraði 24 stig fyrir heimamenn, DeMar DeRozan bætti við 19 stigum fyrir Toronto sem hefur aðeins unnið 6 leiki á tímabilinu en tapað 19. James Harden skoraði 28 stig fyrir Houston, og Marcus Morris bætti við 19.Sacramento – Denver 97-122 JaVale McGee skoraði 19 stig fyrir Denver í stórsigri liðsins. Danilo Gallinari var með 18 stig fyrir gestina frá Denver sem hefur nú unnið sjö leiki í röð gegn Sacramento. Þetta var fjórði tapleikur Sacramento í röð. Isaiah Thomas skoraði 20 stig fyrir Sacramento, DeMarcus Cousins skoraði 19 og tók 11 fráköst fyrir heimamenn.Portland – New Orleans 95-94 Nýliðinnn hjá Portland, Damian Lillard, var hetja liðsins þegar hann tryggði liðinu sigur með þriggja stiga skoti 0,3 sekúndum fyrir leikslok. Þar með tapaði New Orleans sínum sjötta leik í röð. Portland var um tíma 16 stigum undir í leiknum. J.J. Hickson skoraði 24 stig og tók 16 fráköst fyrir Portland. Ryan Anderson skoraði 26 stig fyrir New Orleans.
NBA Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport JD Vance með þrjú hundruð öryggisverði á Ólympíuleikunum Sport Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Enski boltinn Fær ekki að keppa á Ólympíuleikunum af því að hún er kona Sport Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Fótbolti Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Handbolti Fleiri fréttir Segir íslensk félög búin að eyða meira en milljarði í erlenda leikmenn í vetur Segir Grikkjanum haldið í gíslingu Fórnuðu Luka Doncic fyrir hann en Davis náði aðeins að spila 31 leik „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ „Þá er þetta munurinn á liðunum“ Uppgjörið: Tindastóll - Grindavík 74-99 | Grindavík eltir Keflavík í úrslit Martin með ellefu stig í magnaðri endurkomu Alba Berlin Uppgjörið: Keflavík - Hamar/Þór 82-77 | Keflvíkingar í bikarúrslit Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið „Við þekkjum umhverfið allavega betur“ James Harden skipt til Cleveland og titillíkur Cavaliers aukast „Vitum hvernig Stjarnan spilar“ Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 107-110 | Stjarnan í úrslit eftir háspennu í framlengdum leik KR - Tindastóll 85-87 | KR-ingar í úrslit eftir háspennu „Byrjunin verður gríðarlega mikilvæg“ „Þeir setja pressu á alla og gera allt óþægilegt“ KR-ingur að fara á kostum með einu besta körfuboltaliði Bandaríkjanna Stólarnir fóru bara allir í fýlu saman og það er óafsakanlegt Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Martin fagnaði mikilvægum sigri eftir mistök toppliðsins LeBron James valinn í Stjörnuleikinn 22. árið í röð Finni á Krókinn og Þór skiptir um Kana Efins um Pargo-skiptin: „Held að þetta sé ekki rétt hjá þeim“ Ekkert lát á sigurgöngu Tryggva og félaga Paul George dæmdur í 25 leikja bann Sparkaði í og trampaði á mótherja Pargo snýr aftur og klárar tímabilið með Grindavík Uppgjörið: Þór Þ - Keflavík 78 - 98 | Keflavíkurhraðlestin brunaði heim með öll stigin Shabazz látinn fara frá Grindavík Sjá meira