Þriðja félagið rekur Kanann síðan 2009 9. janúar 2012 03:00 Kaninn Einar Bárðarson, annar frá vinstri, færði Kanann úr einu félagi í annað í fyrravor. Sá gerningur er nú til skoðunar hjá skiptastjóra.Fréttablaðið/gva
Skjárinn, sem keypt hefur útvarpsstöðina Kanann, tók ekki yfir félagið utan um útvarpsstöðina heldur keypti út úr því reksturinn – tæki, hljóðver, vörumerki og lagalista – auk þess að kaupa tíðnina á uppboði. Einar Bárðarson, sem rak Kanann og verður áfram yfir stöðinni hjá Skjánum, segir að gamla félagið, Skeifan 7 eignarhald, standi þó ekki eftir sem tóm skel með skuldum. „Það er bara félag sem heldur áfram í rekstri, til dæmis tónleikahaldi,“ segir Einar. „Það er reyndar ekki umfangsmikið – tekur ekki mikið af mínum tíma – en þetta eru stór verkefni og þau verða áfram inni í þessu félagi.“ Friðrik Friðriksson, forstjóri Skjásins, segir það aldrei hafa komið til greina að taka yfir rekstur félagsins og staða þess aldrei könnuð með það fyrir augum. „Það kom aldrei til álita, enda held ég að Einar sé með óskyldan rekstur þarna inni. Þetta félag hefði bara flækst fyrir okkur.“ Einar segir allt starfsfólk Kanans – mestmegnis verktaka – flytjast yfir til Skjásins við breytinguna. „Við borguðum öllu starfsfólki út síðasta starfandi mánuðinn og síðan færast bara allir yfir,“ segir hann. „Þetta eru engir þjóðarflutningar. Þetta eru tíu stöðugildi í það heila.“ Í fyrravor færði Einar rekstur Kanans úr félaginu ÚÍ ehf. yfir í Skeifuna 7 eignarhald. Við það tilefni sendi hann frá sér yfirlýsingu þar sem hann sagði ástæðuna vera óbilgirni Landsbankans. Hann hefði verið í viðskiptum við Sparisjóðinn í Keflavík, sem hefði sýnt Kananum mikinn velvilja, en eftir að Landsbankinn tók SpKef yfir hefði yfirdráttarlán ekki fengist framlengt og félagið þannig verið gert órekstrarhæft á einni nóttu. Einar kvaðst á þeim tíma íhuga málsókn gegn Landsbankanum vegna þessa. ÚÍ er nú komið í gjaldþrotameðferð. Samkvæmt ársreikningi fyrir árið 2009 skuldaði félagið þá ríflega 30 milljónir og átti eignir sem metnar voru á um 20 milljónir. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins munu kröfur í þrotabúið verða meiri en 30 milljónir en litlum eignum vera til að dreifa. Skiptastjóri félagsins, Jón Ármann Guðjónsson, segir að kröfulýsingarfrestur renni út á allra næstu dögum og skiptafundur verði 25. janúar. „Félagið var orðið fjárvana undir síðasta vor. Þá var gerður samningur um að selja ákveðinn rekstur og það er bara verið að skoða þann samning,“ segir hann. „Það sem skiptastjóri skoðar er hvort eðlilegt verð var á honum og greiðslurnar eðlilegar. Ef kröfuhafar telja að þetta sé óeðlilegt með einhverjum hætti þá verður látið reyna á það í riftunarmáli en það er algjörlega óafgreitt og verður bara að koma í ljós,“ segir hann. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa kröfuhafar haft samband við skiptastjóra, gert athugasemdir við ráðstöfun eigna og telja á sér brotið. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira