Slitastjórn greiðir út 106 milljarða kröfur 18. janúar 2012 09:00 Borga út Slitastjórn Glitnis ætlar að borga allar forgangskröfur í næsta mánuði gangi áætlanir hennar eftir. Hana skipa Steinunn Guðbjartsdóttir og Páll Eiríksson. Fréttablaðið/Pjetur
Forgangskröfuhafar í þrotabú Glitnis munu fá kröfur sínar greiddar fyrir febrúarlok samkvæmt tillögu slitastjórnar. Heildarvirði þeirra er 106 milljarðar króna. Um 60% upphæðarinnar fara inn á geymslureikninga vegna ágreinings. Slitastjórn Glitnis hefur tilkynnt kröfuhöfum sínum að hún ætli sér að greiða út 105,8 milljarða króna til forgangskröfuhafa í bú bankans. Um er að ræða samþykktar forgangskröfur upp á 45,3 milljarða króna og forgangskröfur sem enn eru í ágreiningi upp á 60,5 milljarða króna sem lagðar verða inn á greiðslureikninga þar til að ágreiningurinn verður leystur. Komi ekki fram mótmæli munu greiðslurnar verða inntar af hendi fyrir 29. febrúar næstkomandi. Um er að ræða fullnaðargreiðslu til forgangskröfuhafa og fyrstu greiðslu sem greidd verður út úr þrotabúi Glitnis. Þetta kemur fram í tillögu um greiðslur til forgangskröfuhafa sem send var út í gær. Í bréfinu er kröfuhöfum gefið tækifæri til að koma á framfæri mótmælum gagnvart tillögunni fyrir næsta kröfuhafafund Glitnis sem haldinn verður 31. janúar næstkomandi. Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar bankans, segir útgreiðsluna nú gerlega eftir að Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu í október síðastliðnum að svokölluð heildsöluinnlán væru forgangskröfur í bú bankans. Þorri samþykktra forgangskrafna hans eru heildsöluinnlán. „Staðreyndin er sú að Glitnir á meira en nóg fyrir forgangskröfum. Það ber að greiða þær um leið og það er hægt. Meginþorri þeirra krafna sem eru endanlegar hjá okkur og við getum greitt beint til kröfuhafanna eru heildsöluinnlán.“ Öllum kröfum sem lýst var við slitameðferð Glitnis var umbreytt í íslenskar krónur á sölugengi Seðlabanka Íslands 22. apríl 2009. Allar skuldbindingar Glitnis eru því í íslenskum krónum. Þeim peningalegu eignum sem þrotabúið hefur innheimt er þó haldið í þeim gjaldmiðlum sem innheimtast hverju sinni og skuldbindingarnar verða gerðar upp með körfu gjaldmiðla. Alls verða kröfurnar greiddar út í fimm mismunandi gjaldmiðlum: íslenskum krónum (19,08% hverrar greiðslu), norskum krónum (35,66%), dollurum (17,39%), breskum pundum (11,67%) og evrum (35,66%). thordur@frettabladid.is
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira