Stundum er sígandi lukka best 24. janúar 2012 06:00 Á kynningu í gær Geir Gunnlaugsson landlæknir fylgist með Hólmfríði Þorgeirsdóttur næringarfræðingi kynna skýrsluna "Hvað borða Íslendingar? Könnun á mataræði Íslendinga 2010-2011”. Fréttablaðið/GVA
Íslendingar borða aðeins heilsusamlegri mat en síðast þegar mataræði þeirra var kannað árið 2002. Ný könnun sýnir að sykrað gos hefur látið undan síga en sykurlaust gos sækir á. Skortur á D-vítamíni er eitt alvarlegasta vandamálið sem taka þarf á. Ný skýrsla Landlæknis, Matvælastofnunar og Rannsóknastofu í næringarfræði sýnir stöðuna 2010-2011. Mataræði Íslendinga hefur þokast nær ráðleggingum um heilsusamlegt mataræði frá árinu 2002. Þetta er helsta niðurstaða landskönnunar á mataræði landsmanna 2010-2011 sem birt var í gær í skýrslunni „Hvað borða Íslendingar". Í máli Hólmfríðar Þorgeirsdóttur, næringarfræðings og verkefnisstjóra næringar hjá Landlæknisembættinu, kom meðal annars fram að neysla á harðri fitu, en svo nefnast mettuð fita og trans-fitusýrur, og á viðbættum sykri hafi heldur minnkað, um leið og meira sé borðað af grænmeti, ávöxtum og grófu brauði. Þá taka fleiri lýsi en áður. Um leið er engu að síður áréttað að enn sé langt í land með að þorri þjóðarinnar fylgi ráðleggingum um að neyta að minnsta kosti 400 gramma af ávöxtum og grænmeti daglega eða um daglega neyslu grófra brauða og D-vítamíns eða lýsis. D-vítamín neyslu þarf að aukaÍ máli Laufeyjar Steingrímsdóttur, prófessors í næringarfræði hjá Rannsóknastofu í næringarfræði við Háskóla Íslands og Landspítala – háskólasjúkrahús, sem stýrði kynningarfundinum í gær, kom fram að þetta væri fimmta landskönnunin sem fram hafi farið á mataræði fullorðinna Íslendinga. „Sú fyrsta var gerð 1939 og sú síðasta á undan þessari árið 2002, en þær voru allar unnar af Manneldisráði Íslands," sagði hún, en starfsemi Manneldisráðs rann frá þeim tíma inn í Lýðheilsustöð, sem núna er hluti af starfsemi Landlæknisembættisins. Laufey sagði að í skýrslunni nú væru kynntar fyrstu og helstu niðurstöður könnunarinnar, en farið yrði enn betur ofan í gögnin og unnið áfram með þau. „Það er miklu meira kjöt eftir á beinunum sem unnið verður úr og kynnt síðar." Brýnasta viðfangsefnið sem niðurstöður könnunarinnar leiða í ljós, að mati aðstandenda könnunarinnar, er skortur á D-vítamíni í fæðuvali landsmanna og neysla á því er langt undir ráðleggingum hjá þorra þjóðarinnar. Fram kemur að einungis þriðjungur karla og 17 prósent kvenna nái ráðlögðum dagskammti fyrir D-vítamín, um leið og fjórðungur karla og átta prósent kvenna nái ekki lágmarksþörf. Eini hópurinn sem virðist ná ráðlögðum dagskammti eru karlar á aldrinum 45 til 60 ára. Minna járn er nú í morgunkorniFram kom að hlutfall D-vítamíns hafi þegar verið aukið í lýsi, en að auki stendur til íblöndun D-vítamíns í léttmjólk og þá í meira magni en er nú þegar að finna í svokallaðri Fjörmjólk. Fram kemur í samandregnum niðurstöðum könnunarinnar að D-vítamín sé ófullnægjandi hjá öllum sem ekki taka bætiefni eða lýsi reglulega. Þá er meðalneysla á B-vítamíninu fólati undir ráðleggingum, sérstaklega meðal ungra kvenna sem einungis eru sagðar ná 68 prósentum af ráðlögðum dagskammti úr fæðunni einni. Sömuleiðis kemur fram að járn sé af skornum skammti í fæði barna og kvenna á barneignaaldri. „Neysla járns hefur minnkað frá 2002 og er mesti munurinn hjá konum á barneignaaldri, en þær ná að meðaltali tæplega 70 prósentum af ráðlögðum dagskammti," segir í niðurstöðunum, en járn í fæði kemur aðallega úr kjöti, grænmeti, brauði og morgunkorni. Á kynningarfundinum kom fram að dregið hafi verið úr járnblöndun í morgunkorn á síðustu árum. „Og það hefur áhrif," sagði Laufey Steingrímsdóttir. Mjólkurneysla er einnig sögð hafa dregist mjög saman frá 2002, en neysla mjólkur og mjólkurvara er nú sögð samsvara ríflega einum skammti á dag að meðaltali, ef ostur er ekki talinn með. Þá er fiskneysla svipuð og í síðustu könnun, en helmingur fólks borðar fiskmáltíð að minnsta kosti tvisvar í viku. Óvissa um áhrif hrunsinsMeðal annarra breytinga sem dregnar eru fram í könnuninni er að dregið hefur úr neyslu á sykruðum gosdrykkjum, um sem nemur 30 prósentum, en á sama tíma hefur drykkja á sykurlausum gosdrykkjum aukist um svipað hlutfall, eða tæp 30 prósent. Töluverður munur er þó sagður á aldurshópum hvað fæðuval varðar. Þannig drekka ungir karlar langmest af sykruðu gosi, en konur á aldrinum 61 til 80 ára langminnst. Alls tóku 1.312 manns, af þeim 2.000 sem leitað var til, á aldrinum 18 til 80 ára þátt í könnuninni og svarhlutfallið því 68,6 prósent. „Og við erum mjög ánægð með hlutfallið. Það er hátt miðað við það sem nágrannaþjóðir okkar eru að fá," segir Hólmfríður. Óvíst er hversu mikil áhrif áföll í efnahagslífi þjóðarinnar hafa haft á neysluhætti, að sögn Hólmfríðar. Hún bendir þó á að vísbendingar séu um að hefði ekki komið til hrunsins árið 2008 hefði grænmetisneysla aukist enn meira. „En við höfum bara þessa tvo punkta þannig að ekki er alveg ljóst hvað gerst hefur í millitíðinni." Framboð á grænmeti segir hún hins vegar hafa aukist jafnt og þétt allt fram til ársins 2007 en svo minnkað 2008, en verið nokkuð stöðugt síðan. Sama gildi um ávexti. Tölur könnunarinnar sýna engu að síður að á milli áranna 2002 og 2010/2011 hafi neysla á grænmeti og ávöxtum aukist um rúm 34 prósent.
Fréttir Mest lesið „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Minkum sleppt út í Mosfellsdal Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Erlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Veður Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Innlent Mjólkurhvít mengun í Sauðá Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Fleiri fréttir Minkum sleppt út í Mosfellsdal „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Sjá meira