Málum fjölgaði um 40 prósent milli ára 24. janúar 2012 02:45 Fólk Í fyrra sneri fjórðungur kvartana til umboðsmanns Alþingis að töfum á afgreiðslu mála hjá stjórnvöldum. Fréttablaðið/Vilhelm
Á árinu 2011 bárust umboðsmanni Alþingis alls 519 kvartanir. Á sama tíma tók hann til athugunar níu mál að eigin frumkvæði. Skráð mál á árinu voru því alls 528 talsins, en það er 40 prósenta fjölgun frá árinu áður. „Árið 2010 bárust 370 kvartanir og sjö mál voru tekin til athugunar að frumkvæði umboðsmanns. Málum hefur því fjölgað verulega," segir á vef umboðsmanns Alþingis. „Umboðsmaður hefur jafnframt afgreitt fleiri mál á árinu en nokkru sinni fyrr eða alls 473 mál en flest höfðu þau áður verið árið 2010 eða 398," segir þar jafnframt. Um áramótin voru alls 157 mál til athugunar hjá umboðsmanni en á sama tíma í fyrra voru 102 mál til athugunar. „Þessi staða skýrist meðal annars af því að kvörtunum til umboðsmanns fjölgaði fyrst og fremst á síðari hluta ársins og af hálfu umboðsmanns er því beðið skýringa stjórnvalda í fleiri málum en áður og fleiri mál eru einnig til lokaafgreiðslu." Í samantekt umboðsmanns kemur fram að líkt og síðustu ár hafi flest þeirra mála sem skráð voru hjá umboðsmanni lotið að töfum á afgreiðslu mála hjá stjórnvöldum. „Þeim fjölgaði úr 67 í 135. Síðustu ár hafa þessi mál verið um 18 prósent skráðra mála en voru á síðasta ári 25,5 prósent." - óká
Fréttir Mest lesið Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Hættulegt að lána lyf Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira