Telur að hagur heimilanna muni vænkast 8. febrúar 2012 11:00 Einkaneyslu er spáð hægvaxandi fram til ársins 2014. fréttablaðið/vilhelm
Hagkerfið á Íslandi er að taka við sér. Hagvöxtur er að aukast, atvinnuleysið fer hægt minnkandi en verðbólgan helst þó enn fremur há á þessu ári, en fer eftir það lækkandi. Staða heimilanna fer hægt batnandi og eru þau að byrja að rétta úr kútnum eftir þrengingar síðustu ára. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri endurskoðaðri hagspá hagdeildar ASÍ sem birt var í gær. Spáin er fyrir árin 2012 til 2014. Í hagspánni segir að kaupmáttur ráðstöfunartekna heimilanna hafi vaxið um 6,5% í fyrra. Búast má við að það hægi á vexti ráðstöfunartekna á þessu ári. Hagdeildin spáir því að einkaneysla vaxi um 2,2% á þessu ári, 1,1% á næsta ári og um 2,1% árið 2014. Staðan á vinnumarkaði verður áfram erfið en batnar hægt í takt við jákvæðari horfur í efnahagsmálum. Í lok spátímans 2014 er gert ráð fyrir að atvinnuleysið verði 4,9%. Viðsnúningur varð í íslensku efnahagslífi í fyrra, segir í plagginu en áætlanir gera ráð fyrir að hagvöxtur árið 2011 hafi verið 3,1%. Áfram er gert ráð fyrir hægfara bata með vexti landsframleiðslu á bilinu 1,4% til 2% á ári næstu þrjú ár. Gert er ráð fyrir að gengi krónunnar styrkist um 5% á spátímanum en verði áfram veikt og gengisvísitalan verði komin í 206 stig árið 2014. Verðbólga verður mikil í ár eða 5,1% en hún minnkar smám saman þegar líður á spátímann og verður 2% í árslok 2014. - shá
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Atvinnulíf Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira