Bakkavararbræður kaupa fjórðung á þrjá milljarða 9. maí 2012 11:00 Bræðurnir Lýður og Ágúst töpuðu allri eign sinni í Bakkavör Group en hafa nú fengið tækifæri til að kaupa sig aftur inn í félagið sem þeir stofnuðu á sínum tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir munu greiða 15 milljónir punda, um þrjá milljarða króna, fyrir 25 prósenta hlut í Bakkavör Group, samkvæmt heimildum Markaðarins. Lagt verður til á hluthafafundi, sem haldinn verður síðar í þessum mánuði, að hlutafé félagsins verði aukið sem þessu nemur og að bræðurnir fái að kaupa það allt. Afgangurinn af hlutafé Bakka-varar Group verður í eigu þeirra íslensku kröfuhafa sem gerðu nauðasamning við félagið fyrir tveimur árum. Þeirra stærstir eru Arion banki, skilanefnd Glitnis, LSR, Lífeyrissjóður verzlunarmanna og Gildi lífeyrissjóður. Samhliða munu bræðurnir gefa eftir meirihluta í stjórn Bakka-varar Group sem þeir hafa haldið frá því að nauðasamningurinn var undirritaður. Auk þess þurfa þeir að skila eignarhlut í Bakkavör Group til Klakka, sem hét áður Exista. Sá eignarhlutur var færður út úr því félagi árið 2009 þegar bræðurnir réðu enn yfir Existu. Sá gjörningur hefur meðal annars verið til rannsóknar hjá embætti sérstaks saksóknara. Hið nýja eigið fé sem kemur inn í félagið mun meðal annars verða notað til að greiða kostnað af fjárhagslegri endurskipulagningu Bakkavarar og til að greiða erlendum bönkum sem félagið skuldar fé fyrir að gefa eftir lánaskilmála sem það hefur þegar brotið gegn. Heildarvirði Bakkavarar er talið vera á bilinu 20-40 milljarðar króna. Fáist það verð fyrir félagið myndu bræðurnir Ágúst og Lýður fá fimm til tíu milljarða króna fyrir þann hlut sem þeir eru nú að kaupa á þrjá milljarða króna. - þsj
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira