Landsbankinn hækkar vexti á óverðtryggðum lánum 23. maí 2012 16:15 Landsbanki Íslands.
Landsbankinn hefur hækkað vexti á óverðtryggðum húsnæðislánum sínum. Óverðtryggðir vextir sem eru fastir í þrjú til fimm ár eru nú 7,0 til 7,3 prósent. Þeir voru 6,4 til 6,6 prósent þegar lánin voru kynnt síðastliðið haust. Breytilegir óverðtryggðir vextir á húsnæðislánum bankans eru nú 6,5 prósent en voru 5,9 prósent þegar þeir voru sem lægstir. Hækkanirnar eru afleiðing af stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands sem hafa hækkað um 0,75 prósentustig á skömmum tíma. Þeir eru nú 5,5 prósent. Arion banki, sem býður einvörðungu upp á fasta óverðtryggða vexti til fimm ára, hækkaði vexti sína sama dag og stýrivaxtahækkun Seðlabankans var kynnt í síðustu viku. Þeir fóru þá í 7,45 prósent, en voru upphaflega 6,45 prósent þegar lánin voru kynnt í fyrrahaust. Íslandsbanki hækkaði óverðtryggða vexti sína eftir stýrivaxtahækkunina í mars og eru föstu vextirnir, sem eru fastir í þrjú ár, nú 6,55 prósent og breytilegu vextirnir 5,65 prósent. Samkvæmt upplýsingum frá bankanum verður ný vaxtatafla kynnt um komandi mánaðamót og þá mun koma í ljós hvort bankinn fylgi fordæmi hinna. MP banki býður einvörðungu upp á breytilega vexti og eru þeir 5,65 prósent í dag. Þeir hafa ekki hækkað eftir stýrivaxtahækkunina. - þsj
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira