Landsbankinn var á móti kaupum bræðranna 1. júní 2012 04:30 Bakkavararbræður munu eignast 25 prósenta hlut í Bakkavör Group fyrir verð sem er lægra en matsvirði félagsins. fréttablaðið/valli fréttablaðið/valli
Hópur hluthafa Í Bakkavör Group var á móti því að bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir myndu fá að kaupa allt að 25 prósenta hlut í félaginu í gegnum hlutafjáraukningu fyrir um fjóra milljarða króna. Kaupverðið er töluvert undir matsvirði Bakkavarar Group, en hlutafé félagsins er talið 20-40 milljarða króna virði. Á móti myndi hlutur annarra hluthafa þynnast út. Einn af þeim aðilum sem var mótfallinn samkomulaginu var Landsbankinn. Þetta staðfestir Kristján Kristjánsson, upplýsingarfulltrúi bankans, í samtali við Fréttablaðið. Hann segir bankann hafa setið hjá í atkvæðagreiðslu um málið. Í samkomulaginu fólst að íslenskir kröfuhafar Bakkavarar Group myndu eignast félagið að mestu. Á sama tíma myndi falla úr gildi hluthafasamkomulag sem tryggði bræðrunum meirihluta í stjórn Bakkavarar Group. Á móti var samþykkt að þeir gætu keypt ofangreindan hlut. Hópur minni hluthafa var þó á móti þeim hluta samkomulagsins sem tryggði bræðrunum hlut í félaginu að nýju. Að sögn Kristjáns var Landsbankinn mjög óánægður með það verð sem bræðrunum bauðst í hlutafjáraukningunni og marglýsti hann andstöðu sinni við þann hluta samkomulagsins. Hlutur bankans hafi þó einungis verið tvö prósent og því hafi hann ekki verið afgerandi við afgreiðslu málsins. Ferlið hefur verið leitt af Arion banka, sem var stærsti einstaki kröfuhafi Bakkavarar Group. - þsj
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira