Góður ársfjórðungur hjá Íslandsbanka 1. júní 2012 02:15 Birna Einarsdóttir
Íslandsbanki hagnaðist um 5,6 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi ársins. Til samanburðar var hagnaður bankans 3,6 milljarðar á sama ársfjórðungi síðasta árs en alls hagnaðist bankinn um 29,4 milljarða í fyrra. Rekstrarniðurstaða bankans verður að teljast góð í ljósi helstu arðsemishlutfalla. Var arðsemi eigin fjár á ársfjórðungnum þannig 17,7 prósent og arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi 15,1 prósent. Sömu hlutföll voru hvor tveggja 11,0 prósent á síðasta ári. Sérstaka athygli vekur að þóknanatekjur bankans jukust um 23 prósent miðað við sama fjórðung í fyrra en þóknanatekjur hafa verið hlutfallslega litlar hjá bönkunum frá bankahruni. „Við fundum fyrir aukinni útlánaeftir-spurn á ársfjórðungnum. Sérstaklega sjáum við vöxt hjá Ergo, fjármögnunarþjónustu Íslandsbanka. Þetta gefur til kynna að fyrirtæki séu byrjuð að taka varfærin skref í fjárfestingum,“ segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka. Íslandsbanki sameinaðist Byr sparisjóði á ársfjórðungnum og ber uppgjörið merki þess. Til að mynda hækkaði kostnaðarhlutfall bankans úr 56 prósentum á síðasta ári í 60,7 prósent á fjórðungnum en líklegt má telja að hlutfallið lækki á ný eftir því sem lengra líður frá sameiningunni. Eiginfjárhlutfall bankans var í lok ársfjórðungsins 23,3 prósent sem er talsvert umfram 16 prósent lágmark Fjármálaeftirlitsins.- mþl
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Fleiri fréttir Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Sjá meira