Hvít jól algengari en rauð á síðustu árum 19. desember 2012 08:00
Veðurfræðingar á Veðurstofu Íslands treysta sér ekki enn til að spá fyrir um hvort jólin verði rauð eða hvít þetta árið, og segja óvissu í veðurspám of mikla. Á síðustu átján árum hafa hvít jól verið örlítið algengari en rauð á höfuðborgarsvæðinu. Eftir frost og stillu síðustu daga eru umhleypingar í kortunum. Hitastig fer hækkandi og von er á úrkomu víða um land samkvæmt spám Veðurstofunnar. Mikil óvissa er um veður á aðfangadag, en nýjustu spár gera ráð fyrir stífri austan- og norðaustanátt með rigningu víða, en slyddu eða snjókomu norðan til. Ómögulegt er því að spá með nokkurri vissu um hvort jólin verði rauð eða hvít, þó líkurnar á rauðum jólum séu mögulega minni en stundum vegna umhleypinganna fram undan. Samkvæmt mælingum Veðurstofunnar hafa verið hvít jól í Reykjavík í tíu af síðustu 18 árum, eða í nærri 56 prósentum tilvika, segir Guðrún Nína Petersen, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Miðað er við snjóþekju klukkan 9 að morgni jóladags. Oftar er hvítt á Akureyri um jólin, eða í um 61 prósenti tilvika á síðustu 18 árum. Á Bolungarvík er hlutfallið það sama og í Reykjavík, 56 prósent, og á Kirkjubæjarklaustri hafa jólin verið hvít í nákvæmlega helmingi tilvika frá árinu 1994. - bj
Fréttir Mest lesið Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Hættulegt að lána lyf Innlent Fleiri fréttir Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Grunaður um að ofsækja son sinn sem sleit á öll tengsl Sjá meira