NBA í nótt: Clippers bætti metið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. janúar 2013 09:00 Chris Paul er vinsæll meðal stuðningsmanna LA Clippers. Mynd/AP
Gengi liðanna frá Los Angeles er sem fyrr ólíkt í NBA-deildinni í körfubolta en alls fóru ellefu leikir fram í nótt. LA Clippers vann góðan sigur á Dallas á heimavelli, 99-93, og hefur því unnið þrettán heimaleiki í röð. Um félagsmet er að ræða. Chris Paul var með nítján stig og sextán stoðsendingar fyrir Clippers. Matt Barnes átti einnig góða innkomu af bekknum og skoraði nítján stig. Blake Griffin var með fimmtán stig og þrettán fráköst. Clippers komst með sigrinum upp fyrir Oklahoma City og í efsta sæti Vesturdeildarinar, en liðið er með bestan árangur allra liða í NBA-deildinni. LA Lakers tapaði hins vegar sínum fimmta leik í röð, nú fyrir San Antonio, 108-105. Hvorki gengur né rekur hjá Lakers sem er í ellefta sæti Vesturdeildarinnar. Tony Parker var með 24 stig og Manu Ginobili nítján fyrir San Antonio. Kobe Bryant var stigahæstur hjá Lakers með 27 stig en Metta World Peace var með 23 stig. Bryant fékk reyndar tækifæri til að tryggja sínum mönnum framlengingu á lokasekúndum leiksins en þriggja stiga skot hans klikkaði. Boston vann sinn fjórða leik í röð og Oklahoma City vann sömuleiðis. Orlando tapaði hins vegar fyrir Denver og þar með sínum tíunda leik í röð. Liðið hefur reyndar tapað öllum sínum leikjum síðan að Glen Davis meiddist.Úrslit næturinnar: Toronto - Philadelphia 90-72 Charlotte - Utah 102-112 Cleveland - Atlanta 99-83 Boston - Phoenix 87-79 Chicago - Milwaukee 96-104 New Orleans - Houston 88-79 San Antonio - LA Lakers 108-105 Oklahoma City - Minnesota 106-84 Denver - Orlando 108-105 LA Clippers - Dallas 99-93 Golden State - Memphis 87-94
NBA Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira