NBA í nótt: Irving fór á kostum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. febrúar 2013 09:13 Mynd/AP
Kyrie Irving var í aðalhlutverki þegar að Cleveland vann afar óvæntan sigur á Oklahoma City í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Irving skoraði 35 stig í leiknum, þar af þrettán stig á síðustu þremur mínútum leiksins. Hann skoraði úr síðustu fimm skotum sínum í leiknum, þar af þriggja stiga körfu þegar 42 sekúndur voru eftir. Kevin Durant var með 32 stig og Russell Westbrook 28 en Oklahoma City hefur verið eitt allra besta lið deildarinnar á tímabilinu - með bestan árangur allra liða á útivelli. San Antonio Spurs vann sinn tíunda sigur í röð í deildinni en liðið mætti Washington í nótt og vann, 96-86. Tony Parker var með nítján stig og Danny Green fimmtán. Tim Duncan meiddist á hné í öðrum leikhluta en liðsfélagar hans sögðu meiðslin ekki alvarleg eftir leik. New York vann Sacramento, 120-81. Amare Stoudemire nýtti öll tíu skotin sín utan af velli og skoraði 21 stig. New York komst á 38-4 sprett í fyrri hálfleik og var sigurinn aldrei í hættu. Houston vann Charlotte, 109-95, þar sem James Harden var með 21 stig, ellefu fráköst og ellefu stoðsendingar. Þetta var hans fyrsta þrefalda tvenna á ferlinum. Golden State endurheimti Stephen Curry úr meiðslum og liðið vann góðan sigur á Phoenix á heimavelli, 113-93. Curry var með 29 stig en þetta var fjórði sigur Golden State í röð.Úrslit næturinnar: Atlanta - Chicago 76-93 New York - Sacramento 120-81 Cleveland - Oklahoma City 115-110 Houston - Charlotte 109-95 Minnesota - New Orleans 115-86 Milwaukee - Orlando 107-98 San Antonio - Washington 96-86 Portland - Utah 105-99 Golden State - Phoenix 113-93
NBA Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira