NBA: Charlotte stöðvaði sigurgöngu Boston Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2013 09:00 Mynd/NordicPhotos/Getty
Charlotte Bobcats endaði sjö leikja sigurgöngu Boston Celtics í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, San Antonio Spurs vann Chicago Bulls án þriggja stærstu stjörnuleikmanna liðsins, Washington Wizards vann sinn fjórða leik í röð, Los Angeles Clippers vann Philadelphia og Indiana Pacers tapaði í framlengingu í öðrum heimaleiknum í röð.Byron Mullens skoraði 25 stig og tók 18 fráköst þegar Charlotte Bobcats vann Boston Celtics 94-91 en Boston-liðið var búið að vinna sjö leiki í röð og alla leiki sína síðan að Rajon Rondo sleit krossband. Ramon Sessions var með 19 stig og lykilkörfu í lokin og Kemba Walker bætti við 18 stigum, 6 fráköstum og 6 stoðsendingum. Jeff Green var stigahæstur hjá Boston með 18 stig og Kevin Garnett var með 16 stig og 13 fráköst. Paul Pierce var með 13 stig, 8 fráköst og 8 stoðsendingar.San Antonio Spurs, besta lið NBA-deildarinnar, lék án þeirra Tony Parker, Tim Duncan og Manu Ginobili í nótt en það kom ekki að sök þegar liðið vann 103-89 útisigur á Chicago Bulls. Kawhi Leonard skoraði 26 stig og Danny Green var með 18 stig. Gary Neal og Tiago Splitter skoruðu báðir 16 stig fyrir Spurs og Nando De Colo sem kom inn í byrjunarliðið fyrir Parker var með 9 stig og 7 stoðsendingar. Nate Robinson skoraði mest fyrir Chicago eða 20 stig og Richard Hamilton var með 16 stig.Nýliðinn Brandon Beal skoraði 28 stig þegar Washington Wizards vann 102-90 útisigur á Milwaukee Bucks. Þetta var fjórði sigur Wizards-liðsins í röð en liðið hefur unnið 10 af 17 leikjum sínum síðan að John Wall kom til baka eftir meiðsli. Wall var með 14 stig og 10 stoðsendingar í nótt en Nene Hilario skoraði 21 stig og tók 13 fráköst. Monta Ellis var með 24 stig, 7 fráköst og 8 stoðsendingar hjá Milwaukee sem tapaði sínum fjórða leik í röð og þeim sjötta af síðustu sjö. Brandon Jennings klikkaði á 14 af 17 skotum sínum í leiknum og var bara með 7 stig.Chris Paul var með 21 stig og 11 stoðsendingar þegar Los Angeles Clippers vann Philadelphia 76ers 107-90. Blake Griffin og Jamal Crawford skoruðu báðir 20 stig fyrir Clippers-liðið en liðið lék án bæði Chauncey Billups og Caron Butler. Nick Young skoraði mest fyrir Philadelphia eða 29 stig.Brook Lopez skoraði 25 stig þegar Brooklyn Nets vann Indiana Pacers 89-84 í framlengdum leik í Indianapolis og það þrátt fyrir að spila án Deron Williams. Þetta var annað tap Indiana í röð á heimavelli í framlengingu en George Hill var stigahæstur hjá liðinu með 22 stig. Brooklyn skoraði fjögur síðustu stig leiksins til þess að tryggja sér framlengingu og hóf hana síðan á 9-3 spretti.Úrslit í öllum leikjum í NBA-deildinni í nótt: Philadelphia 76ers - Los Angeles Clippers 90-107 Charlotte Bobcats - Boston Celtics 94-91 Cleveland Cavaliers - Minnesota Timberwolves 92-100 Indiana Pacers - Brooklyn Nets 84-89 (framlengt) Detroit Pistons - New Orleans Hornets 86-105 Chicago Bulls - San Antonio Spurs 89-103 Milwaukee Bucks - Washington Wizards 90-102 Dallas Mavericks - Atlanta Hawks 101-105
NBA Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Náði loksins titlinum sem hana dreymdi um Golf „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira