NBA í nótt: San Antonio slapp með sigur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. mars 2013 09:00 Mynd/AP
San Antonio Spurs vann nauman sigur á Dallas, 92-91, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Dallas átti möguleika á að tryggja sér sigurinn á lokasekúndu leiksins en þriggja stiga skot Vince Carter skoppaði af hringnum. Þetta var sjötti leikur San Antonio í röð án Tony Parker sem hefur verið frá vegna meiðsla. Liðið tapaði boltanum fimmtán sinnum í leiknum og skotnýting utan af velli var aðeins 44 prósent. Tim Duncan skoraði 28 stig fyrir San Antonio og tók þar að auki nítján fráköst. Dirk Nowitzky skoraði 21 stig fyrir Dallas og tók ellefu fráköst. San Antonio er í efsta sæti Vesturdeildarinnar og Dallas í því tíunda en átta efstu komast í úrslitakeppnina í vor. San Antonio hefur þó átt erfitt uppdráttar í fjarveru Parker en slapp með skrekkinn í nótt. Einn annar leikur fór fram í deildinni í nótt. Portland vann New York á heimavelli, 105-90. Damien Lillard skoraði 26 stig og gaf tíu stoðsendingar og þá var LaMarcus Aldridge með 22 stig og tíu fráköst. JR Smith skoraði 33 stig fyrri New York og Kenyon Martin tólf. New York er í þriðja sæti Austurdeildarinnar en tapað nú þremur leikjum í röð. Meiðsli hafa plagað marga leikmenn liðsins. Portland er í ellefta sæti Vesturdeildarinnar.
NBA Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Löggan þorði ekki að þiggja miða Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Náði loksins titlinum sem hana dreymdi um Golf Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira