NBA: Dallas að blanda sér inn í baráttuna við Lakers og Utah Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. mars 2013 09:00 Dirk Nowitzki er alskeggjaður þessa dagana. Mynd/AP
Dallas Mavericks er enn á fullu með í baráttunni um síðasta sætið inn í úrslitakeppni Vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta eftir þriðja sigur sinn í röð í nótt. Dallas vann þá Los Angeles Clippers í framlengdum leik.Dirk Nowitzki skoraði 33 stig í 109-102 sigri Dallas Los Angeles Clippers en hann hefur ekki skorað meira í einum leik á tímabilinu. Dallas er nú jafnt Utah Jazz í 9. sætinu og aðeins einum sigri á eftir Los Angeles Lakers sem situr þessa stundina í hinu eftirsótta áttunda sæti. Þetta var níundi sigur Dallas í síðustu tólf leikjum. OJ Mayo tryggði Dallas framlenginguna þegar hann jafnaði í 97-97 0,9 sekúndum fyrir leikslok en Chris Paul hafði þá komið Clippers yfir þegar aðeins 5,9 sekúndur voru eftir. Chris Paul skoraði 33 stig fyrir Los Angeles Clippers en liðið skoraði ekki körfu í fjórar mínútur í framlengingunni eftir að Paul kom liðinu yfir í upphafi hennar og á meðan breytti Dallas-liðið stöðunni úr 97-99 í 107-100.J.R. Smith skoraði 32 stig og Carmelo Anthony var með 29 stig fyrir New York Knicks í öruggum 100-85 sigri á Boston Celtics. Jeff Green skoraði 19 stig fyrir Boston og Paul Pierce var með 16 stig en liðið lék enn á ný án Kevin Garnett.Úrslit úr öllum leikjum í NBA-deildinni í nótt: Boston Celtics - New York Knicks 85-100 Detroit Pistons - Minnesota Timberwolves 82-105 Dallas Mavericks - Los Angeles Clippers 109-102 (framlenging)
NBA Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Náði loksins titlinum sem hana dreymdi um Golf „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira