Tracy McGrady samdi við San Antonio Spurs Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. apríl 2013 08:45 Tracy McGrady
San Antonio Spurs hefur bætt við reynslubolta í leikmannahóp sinn fyrir úrslitakeppnina í NBA-deildinni í körfubolta. Tracy McGrady hefur snúið heim frá Kína og verður með Spurs-liðinu í baráttunni um meistaratitilinn. Tracy McGrady er 33 ára gamall og var á sínum tíma einn af bestu leikmönnum deildarinnar. Hann hefur leikið 938 NBA-leiki á ferlinum og er með 19,6 stig, 5,6 fráköst og 4,4 stoðsendingar að meðaltali í leik í þeim. McGrady hefur skorað 25,2 stig að meðaltali í 44 leikjum sínum í úrslitakeppni. McGrady hefur spilað með Toronto, Orlando, Houston, New York Knicks, Detroit og Atlanta til þessa á ferli sínum. Hans blómatími var með Orlando og Houston en meiðsli settu síðan mikinn svip á frammistöðu hans. McGrady var að gera góða hluti í Kína fyrr í vetur en hann var með 25 stig og 7,2 fráköst að meðaltali með liði Qingdao. Hann æfði með Spurs-liðinu áður en hann fór til Kína en bætist nú í leikmannahóp Gregg Popovich fyrir úrslitakeppnina.
NBA Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Löggan þorði ekki að þiggja miða Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Náði loksins titlinum sem hana dreymdi um Golf Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira