Dramatískur sigur Miami í framlengingu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. maí 2013 07:31
LeBron James var sem fyrr í aðalhlutverki þegar að Miami tók forystu gegn Indiana í úrslitarimmu Austurdeildarinnar í NBA-deildinni í körfubolta. James skoraði sigurkörfu leiksins á lokasekúndu framlengarinnar, 103-102, eftir æsispennandi lokamínútur bæði í lok venjulegs leiktíma og framleningarinnar. Leikurinn var í járnum lengst af. Átján sinnum var jafnt og sautján sinnum skiptust liðin á því að vera í forystu - þar af tvívegis á síðustu 2,2 sekúndum leiksins. Ray Allen hefði átt að tryggja sínum mönnum sigurinn í venjulegum leiktíma. Hann fór á vítalínuna þegar sautján sekúndur voru eftir og Miami var tveimur stigum yfir. Þessi örugga vítaskytta klikkaði hins vegar á fyrra vítinu og Miami hélt í lokasóknina þremur stigum undir. Paul George færði sér þetta í nyt og jafnaði leikinn með þriggja stiga körfu þegar 0,7 sekúndur voru eftir. Þar með þurfti að framlengja leikinn. George var svo aftur á ferðinni í framlengingunni. Hann sótti villu utan þriggja stiga línunnar þegar 2,2 sekúndur voru eftir og kom Indiana einu stigi yfir með því að setja öll þrjú vítin niður. Þá var komið að LeBron James. Hann keyrði inn að körfunni á þeim nauma tíma sem var til leiksloka og kláraði leikinn með sniðskoti um leið og leiktíminn rann út. James átti stórleik og var með þrefalda tvennu - 30 stig, tíu fráköst og tíu stoðsendingar. Dwyane Wade var með nítján stig en Miami missti Mario Chalmers af velli vegna meiðsla. George skoraði 27 stig fyrir Indiana og David West 26. Næsti leikur í rimmunni fer fram föstudagskvöld í Miami.
NBA Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Löggan þorði ekki að þiggja miða Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Náði loksins titlinum sem hana dreymdi um Golf Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira