Indiana knúði fram oddaleik Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 2. júní 2013 11:00 Heat réð ekkert við George og Hibbert Mynd/Nordic Photos/Getty
Indiana Pacers skellti Miami Heat 91-77 í sjötta leik liðanna í úrslitum Austurstrandar NBA deildarinnar í körfubolta í nótt. Indiana lagði grunninn að sigrinum með frábærum varnarleik, ekki síst í þriðja leikhluta. Heat var einu stigi yfir í hálfleik 40-39 en hitni liðanna í fyrri hálfleik var mjög slök. Vandræði Heat í sókninni héldu áfram í þriðja leikhluta en þá snögg hitnaði lið Pacers sem náði þrettán stiga forystu 68-55 fyrir fjórða leikhluta. Heat náði aldrei að minnka muninn að neinu ráði og vann Pacers því sannfærandi og öruggan sigur 91-77. LeBron James fór fyrir liði Heat eins og vanalega og fékk svo gott sem enga hjálp í leiknum. James skoraði 29 stig, tók 7 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Mario Chalmers og Dwyane Wade skoruðu 10 stig hvor en Wade hitti aðeins úr 3 af 11 skotum sínum. Vandræði Chris Bosh gegn Pacers halda áfram. Hann virðist ekkert ráða við stóru mennina hjá Pacers og skoraði aðeins 5 stig og tók 4 fráköst en hann hitti úr 1 af 8 skotum sínum í leiknum auk þess að tapa boltanum í þrígang. Paul George og Roy Hibbert fóru á kostum í leiknum. Hibbert var stórkostlegur í vörninni auk þess að skora 24 stig og taka 11 fráköst. George skoraði 28 stig, tók 8 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. George Hill skoraði 16 stig og David West 11 en hann tók líka 14 fráköst en Pacers tóku 20 fleiri fráköst en Heat í leiknum. Oddaleikurinn verður leikinn á mánudagskvöld, rétt eftir miðnætti aðfaranótt þriðjudags, í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport.
NBA Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Löggan þorði ekki að þiggja miða Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Andrea opnar sig eftir sjálfsniðurrrif: „Andskotinn hafi það“ Sport Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Náði loksins titlinum sem hana dreymdi um Golf Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira