Brad Stevens tekur við liði Boston Celtics Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2013 22:58 Brad Stevens. Mynd/NordicPhotos/Getty
Brad Stevens, þjálfari Butler-háskólaliðsins í körfubolta, verður næsti þjálfari hins fornfræga NBA-liðs Boston Celtics. Hann tekur við af Doc Rivers sem hætti og tók við liði Los Angeles Clippers. Þetta kom fram í bandarískum fjölmiðlum í kvöld. Brad Stevens er aðeins 36 ára gamall en hefur náð eftirtektarverðum árangri með Butler-liðið og fór tvisvar með liðið í úrslitaleik bandaríska háskólaboltans árin 2010 og 2011. Stevens var þjálfari Butler-liðsins í sex ár og liðið vann 77,2 prósent leikjanna þar sem hann stýrði liðinu. Brad Stevens fær verðugt verkefni því auk þess að missa þjálfarann sinn til Clippers þá fóru stjörnuleikmennirnir Kevin Garnett og Paul Pierce til Brooklyn Nets. Boston ætlar að byggja upp nýtt lið og liðið verður mjög ungt næsta vetur. Það er því ekki skrýtið að forráðamenn félagsins ákveði að veðja á ungan og stórefnilegan þjálfara.
NBA Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Löggan þorði ekki að þiggja miða Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Náði loksins titlinum sem hana dreymdi um Golf Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira