Fótbolti

Fyrirliði Lazio í hálfs árs bann

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stefano Mauri
Stefano Mauri Mynd / Getty Images
Knattspyrnumaðurinn Stefano Mauri, fyrirliði Lazio, var í dag dæmdur í hálfs árs keppnisbann fyrir að taka þátt í að hagræða úrslitum í ítalska boltanum.

Leikmaðurinn á að hafa vitað af því að hagræða átti úrslitum leiks milli Lazio og Lecce í ítölsku úrvalsdeildinni árið 2011 en ekki tilkynnt það til yfirvalda.

Það ku vera brot á lögum ítalska knattspyrnusambandsins og því var hann dæmdur í bann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×