Morris-tvíburarnir blómstra í Phoenix Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. nóvember 2013 06:00 Markieff og Marcus Morris. Mynd/AFP
Tvíburabræðurnir Markieff og Marcus Morris eru að standa sig vel í NBA-deildinni í körfubolta en þeir spila nú báðir með Phoenix Suns. Morris-bræðurnir áttu mikinn þátt í sigri á Denver Nuggets í fyrrinótt. Markieff Morris skoraði 14 af 28 stigum sínum í fjórða leikhlutanum en hann hitti úr 10 af 13 skotum sínum og var einnig með 10 fráköst. Marcus Morris var síðan með 11 stig, 8 fráköst, 3 stoðsendingar og 2 stolna bolta á þeim tæpu 26 mínútum sem hann spilaði í leiknum. Þetta var annar leikurinn í röð sem Markieff Morris skorar 23 stig eða meira og státar af tvennu en Marcus Morris var ennfremur að brjóta tíu stiga múrinn í þriðja leiknum í röð. Markieff Morris hefur spilað allan NBA-ferilinn með Phoenix-liðinu en Suns valdi hann þrettánda í nýliðavalinu 2011. Houston Rockets valdi Marcus Morris strax á eftir en skipti honum síðan til Phoenix á miðju síðasta tímabili. Markieff Morris er bæði aðeins stærri og þyngri en hann hefur sett persónulegt met í stigum í síðustu tveimur leikjum sínum. Báðir eiga það síðan sameiginlegt að vera miklir orkuboltar sem eru á eftir öllum boltum.
NBA Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira