Fyrsti útisigur Grindavíkurkvenna á tímabilinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. nóvember 2013 21:11 Pálína Gunnlaugsdóttir. Mynd/Stefán
Grindavík vann sinn fyrsta útisigur á tímabilinu þegar liðið heimsótti botnlið KR í DHL-höllina í kvöld í 7. umferð Dominos-deild kvenna í körfubolta. Grindavík hafði tapað tveimur fyrstu útileikjum tímabilsins en vann nokkuð öruggan tíu stiga sigur á Kanalausu KR-liði í Frostaskjólinu, 79-69. Stefán Karlsson, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var í DHL-höllinni og náði þessum skemmtilegu myndum hér fyrir ofan. Grindavíkurliðið nýtti sér einnig tap Snæfells á móti Keflavík fyrr í kvöld og tók annað sætið af Hólmurum. Liðin eru með jafnmörg stig en Grindavík vann framlengdan leik liðanna fyrr í vetur og er ofar á betri árangri í innbyrðisviðureignum. Pálína Gunnlaugsdóttir var með 22 stig, 15 fráköst og 5 stoðsendingar fyrir Grindavík og María Ben Erlingsdóttir bætti við 22 stigum, 11 fráköstum og 5 stoðsendingum. Lauren Oosdyke skoraði 18 stig fyrir Grindavík. KR-liðið var að tapa sínum fimmta leik í röð en liðið hefur leikið án bandarísk leikmanns í síðustu þremur leikjum. Bergþóra Holton Tómasdóttir var langatkvæðamest í KR-liðinu með 25 stig. Sigrún Ámundadóttir skoraði 11 stig og Helga Einarsdóttir var með 10 stig.KR-Grindavík 69-79 (16-25, 18-18, 15-19, 20-17)KR: Bergþóra Holton Tómasdóttir 25/8 fráköst, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 11/9 fráköst, Helga Einarsdóttir 10/8 fráköst, Björg Guðrún Einarsdóttir 9/5 fráköst/7 stoðsendingar, Sara Mjöll Magnúsdóttir 6/5 fráköst, Anna María Ævarsdóttir 6, Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir 2.Grindavík: María Ben Erlingsdóttir 22/11 fráköst/5 stoðsendingar, Pálína Gunnlaugsdóttir 22/15 fráköst/5 stoðsendingar/5 stolnir, Lauren Oosdyke 18/5 fráköst, Ingibjörg Jakobsdóttir 11, Jóhanna Rún Styrmisdóttir 4, Marín Rós Karlsdóttir 2.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Körfubolti „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Fótbolti Messi hágrét eftir leik Fótbolti Í 8-liða úrslit í fyrsta sinn í 72 ár Fótbolti Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands Fótbolti Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Fleiri fréttir 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands Fótbolti
Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands Fótbolti