D'Antoni: Enginn veit hvenær Kobe snýr aftur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. nóvember 2013 22:30 Kobe Bryant. Mynd/AP
Kobe Bryant er byrjaður að æfa með Los Angeles Lakers liðinu en bandarískir fjölmiðlar hafa ekki fengið að vita um það hvenær leikmaðurinn byrjar að spila aftur í NBA-deildinni í körfubolta. Bryant sleit hásin í lok síðasta tímabils. Mike D'Antoni, þjálfari Los Angeles Lakers, var spurður út í endurkomu Kobe Bryant í gær. „Við erum enn að meta stöðuna á honum. Er hann aumur í dag? Verður bakslag á morgun?," sagði Mike D'Antoni við blaðamann ESPN á æfingu Lakers-liðsins í gær. „Hann er búinn að taka fyrsta skrefið en það eru mörg skref eftir. Við þurfum að fara varlega, halda "kúlinu" og slaka aðeins á," bætti D'Antoni við. „Við vitum hvað hann getur en það mun taka sinn tíma að koma honum aftur inn á völlinn. Hann er áhrifaleikmaður fyrir liðið og sérstaklega mikilvægur undir lok leikja. Við verðum að einbeita okkur að því að vinna okkar leiki og það eru margir leikir óspilaðir áður en hann kemur til baka," sagði D'Antoni. „Það er alltof snemmt til að segja hvenær Kobe snýr aftur. Við vitum það ekki. Það veit það enginn," sagði D'Antoni.
NBA Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Náði loksins titlinum sem hana dreymdi um Golf „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira