Kidd fékk sex milljóna sekt fyrir að „hella" niður | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. nóvember 2013 08:50 Jason Kidd, þjálfari Brooklyn Nets. Mynd/AP
Jason Kidd, þjálfari Brooklyn Nets í NBA-deildinni í körfubolta, reyndi að búa sér til leikhlé í lok leiks á móti Los Angeles Lakers í fyrrinótt en forráðamenn deildarinnar voru ekki hrifnir. Atvikið fékk mikla fjölmiðlaathygli í Bandaríkjunum og NBA hefur ákveðið að sekta Kidd um 50 þúsund dollara fyrir að hella niður sem gera um sex milljónir í íslenskum krónum. Kidd hélt á kókglasi þegar hann rakst á Tyshawn Taylor þegar aðeins 8,3 sekúndur voru eftir af leiknum og Brooklyn var búið að nota öll sín leikhlé. Það leit út fyrir að hann hafi kallað á Taylor og sagt honum að hlaupa á sig. Dómararnir þurftu að stoppa leikinn til þess að hægt væri að þrífa upp bleytuna af gólfinu. Kidd gat þar með sett upp síðustu sóknina sem skilaði þó ekki körfu og Nets-liðið tapaði enn einum leiknum. Kidd sló á létta strengi eftir leik þegar hann var spurður út í atvikið og talaði um að vera með sveitta lófa og að hann hafi aldrei verið öruggur með boltann í höndunum. Hann neitaði jafnframt því að hafa gert þetta viljandi. Það er hægt að sjá atvikið hér fyrir neðan sem kostar Kidd sex milljónir en þá er reyndar ekki búið að taka inn í kostnað við hreinsun á jakkafötunum.
NBA Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Löggan þorði ekki að þiggja miða Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Náði loksins titlinum sem hana dreymdi um Golf Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira