Menning

Silja þýðir Munro

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Silja Aðalsteinsdóttir
Silja Aðalsteinsdóttir
„Það er rétt, ég tók að mér að þýða nýjustu bók Munro, þannig að ég hætti ekkert að vinna þótt ég hætti að vinna,“ segir Silja Aðalsteinsdóttir, sem láta mun af störfum sem ritstjóri hjá Forlaginu um áramótin.



Silja segist ekki hafa stúderað verk Munro mikið en það standi til bóta. „Ég hef lesið hana svolítið, en ekki lesið allar bækurnar,“ segir hún. „Mér fannst hún heillandi frá fyrstu tíð en mér datt aldrei í hug að ég fengi leyfi til þess að þýða hana.“



Dear Life kom út í fyrra og Silja segir ekki ólíklegt að hún hafi ráðið úrslitum um að Munro fékk Nóbelinn. „Mér þykir ekki ólíklegt að Dear Life hafi neglt þessi Nóbelsverðlaun, þótt Munro hafi auðvitað lengi verið í umræðunni sem mögulegur þiggjandi þeirra. Hún er andskoti góð, þessi bók, og bestu sögurnar eru þannig að manni líður eins og maður hafi verið að lesa miklu lengri sögu. Þær eru næstum því eins og skáldsögur þótt þær séu bara langar smásögur.“

Alice MunroMynd/AP
Bókin inniheldur fjórtán sögur og þar á meðal eru sögur sem í raun eru endurminningar skáldkonunnar. „Síðasti bókarhlutinn er endurminningar hennar sjálfrar,“ útskýrir Silja. „Og hún sagði í viðtali eftir að þessi bók kom út að þetta væri það sem hún myndi láta eftir sig um sjálfa sig. Hún myndi ekki skrifa sjálfsævisögu, þessar smásögur úr lífi hennar ættu að nægja til að stilla forvitni fólks.“



Endanlegur útgáfudagur hefur ekki verið ákveðinn en Silja lofar að við munum fá að lesa Munro á íslensku fyrir áramótin 2014-2015.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.