NBA í nótt: Níundi sigur Golden State í röð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. janúar 2014 09:04
Golden State Warriors heldur áfram að gera það gott í NBA-deildinni en liðið vann í nótt sinn níunda sigur í röð.Golden State vann Washington á útivelli, 112-96. Klay Thompson átti stórleik og skoraði 26 stig. Eftir jafnan fyrri hálfleik gerðu gestirnir út um leikinn með 30-5 sprett í upphafi þess síðari. Hápunktur leiksins var troðsla Andrew Bogut þegar hann náði að fylgja eftir „skoti“ Steph Curry en hana má sjá hér fyrir neðan. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1975 sem að Golden State vinnur níu leiki í röð og er liðið komið upp í fjórða sæti Vesturdeildarinnar. Lítið var um óvænt úrslit í deildinni í nótt en New York vann þó góðan útisigur á Dallas, 92-80, þar sem að Carmelo Anthony skoraði nítján stig, þar af fimmtán í fyrsta leikhluta. New York náði mest nítján stiga forystu í leiknum en Dallas náði mest að minnka muninn í sex stig í síðari hálfleik. Dirk Nowitzky var stigahæstur hjá heimamönnum með átján stig og níu fráköst. Tvö efstu lið Austurdeildarinnar, Indiana og Miami, unnu sína leiki og efsta lið Vesturdeildarinnar, Oklahoma City, vann öruggan sigur á Boston á heimavelli. Liðið forðaðist þar með að tapa sínum þriðja heimaleik í röð.Úrslit næturinnar: Detroit - Memphis 84-112 Cleveland - Indiana 78-82 Miami - Toronto 102-97 Washington - Golden State 96-112 Oklahoma City - Boston 119-96 Dallas - New York 80-92 LA Lakers - Denver 115-137
NBA Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Náði loksins titlinum sem hana dreymdi um Golf „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira