NBA í nótt: Þriðja tap Oklahoma City í röð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. febrúar 2014 09:00
Ekkert hefur gengið hjá Oklahoma City, efsta liði vesturdeildarinnar, eftir stjörnuhelgina í NBA-deildinni. Liðið hefur tapað öllum þremur leikjum sínum eftir stjörnuhelgina en í nótt mætti liðið Cleveland á heiamvelli og tapaði, 114-104.Kyrie Irving skoraði 31 stig fyrir Cleveland í leiknum, þar af fjórtán í fjórða leikhluta. Jarrett Jack bætti við 21 stigi en Tristan Thompson var með ellefu stig og ellefu fráköst.Kevin Durant skilaði flottum tölum eins og venjulega en það dugði ekki til. Hann var með 28 stig, tíu fráköst og níu stoðsendingar. Russell Westbrook var með 24 stig og níu stoðsendingar fyrir Oklahoma City. Cleveland er í tíunda sæti austurdeildarinnar og þremur sigrum á eftir Brooklyn og Atlanta sem eru í sjöunda og áttunda sætinu.LA Clippers vann Houston, 101-93. Blake Griffin var með 23 stig og sextán fráköst en þetta var sjötti sigur Clippers í síðustu átta leikjum liðsins.DeAndre Jordan var með þrettán stig og tíu fráköst en þetta var 30. tvöfalda tvennan hans á tímabilinu. Dwight Howard skoraði 23 stig fyrir Houston og James Harden átján.LA Lakers tapaði enn einum leiknum, í þetta sinn fyrir Memphis, 108-103. Courtney Lee var með átján stig og Marc Gasol fjórtán auk þess að taka tólf fráköst. Lakers spilaði þó vel í fjórða leikhluta og náði að minnka muninn í þrjú stig á lokamínútunni. Nær komst liðið þó ekki. Jodie Meeks var stigahæsti leikmaður Lakers með nítján stig. Lakers er í neðsta sæti vesturdeildarinnar með næstversta árangur allra liða í NBA-deildinni.Úrslit næturinnar: Philadelphia - Orlando 90-101 Boston - Atlanta 115-104 Chicago - Golden State 103-83 Dallas - New Orleans 108-89 Memphis - LA Lakers 108-103 Oklahoma City - Cleveland 104-114 San Antonio - Detroit 120-110 Utah - Phoenix 109-86 Portland - Brooklyn 124-80 LA Clippers - Houston 101-93
NBA Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira