NBA í nótt: Harden með 43 stig í þremur leikhlutum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. febrúar 2014 09:00
James Harden fór á kostum þegar Houston vann Sacramento, 129-103, í NBA-deildinni í körfubolta. Alls fóru sjö leikir fram í nótt. Harden skoraði 43 stig, sem er persónulegt met á tímabilinu, þrátt fyrir að hafa hvílt allan fjórða leikhluta. Sigur Houston var öruggur en liðið náði 25 stiga forystu strax í fyrsta leikhluta. Harden nýtti ellefu af 20 skotum sínum utan af velli og gaf þar að auki átta stoðsendingar.DeMarcus Cousins skoraði sextán stig fyrir Sacramento en var rekinn af velli í þriðja leikhluta fyrir að rífast við dómara.Portland vann Denver, 100-95, þar sem Damien Lillard skoraði 31 stig í fjarveru LaMarcus Aldridge.JJ hickson átti stórleik fyrir Denver en hann tók samtals 25 fráköst í leiknum, þar af fimmtán sóknarfráköst. Randy Foye skoraði sautján stig og var stigahæstur í Denver.Indiana vann Lakers, 118-98. Paul George skoraði 20 stig og Evan Turner þrettán í sínum fyrsta leik með Indiana. Indiana er með bestan árangur allra liða í NBA en liðið hefur unnið 43 leiki af 56 og trónir á toppi austurdeildarinnar. Lakers (19-38) er hins vegar með verstan árangur allra liða í vesturdeildinni.Úrslit næturinnar: Cleveland - Toronto 93-99 Indiana - LA Lakers 118-98 Washington - Orlando 115-106 Atlanta - Chicago 103-107 Denver - Portland 95-100 Phoenix - Minnesota 101-110 Sacramento - Houston 103-129
NBA Mest lesið Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Íslenski boltinn Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Enski boltinn Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport Mæta „reyndari og erfiðari“ andstæðingum í búrinu í Framheimilinu Sport Með móral eftir djammið og sendu þýfið á ÓL Sport Fleiri fréttir Segir íslensk félög búin að eyða meira en milljarði í erlenda leikmenn í vetur Segir Grikkjanum haldið í gíslingu Fórnuðu Luka Doncic fyrir hann en Davis náði aðeins að spila 31 leik „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ „Þá er þetta munurinn á liðunum“ Uppgjörið: Tindastóll - Grindavík 74-99 | Grindavík eltir Keflavík í úrslit Martin með ellefu stig í magnaðri endurkomu Alba Berlin Uppgjörið: Keflavík - Hamar/Þór 82-77 | Keflvíkingar í bikarúrslit Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið „Við þekkjum umhverfið allavega betur“ James Harden skipt til Cleveland og titillíkur Cavaliers aukast „Vitum hvernig Stjarnan spilar“ Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 107-110 | Stjarnan í úrslit eftir háspennu í framlengdum leik KR - Tindastóll 85-87 | KR-ingar í úrslit eftir háspennu „Byrjunin verður gríðarlega mikilvæg“ „Þeir setja pressu á alla og gera allt óþægilegt“ KR-ingur að fara á kostum með einu besta körfuboltaliði Bandaríkjanna Stólarnir fóru bara allir í fýlu saman og það er óafsakanlegt Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Martin fagnaði mikilvægum sigri eftir mistök toppliðsins LeBron James valinn í Stjörnuleikinn 22. árið í röð Finni á Krókinn og Þór skiptir um Kana Efins um Pargo-skiptin: „Held að þetta sé ekki rétt hjá þeim“ Ekkert lát á sigurgöngu Tryggva og félaga Paul George dæmdur í 25 leikja bann Sparkaði í og trampaði á mótherja Pargo snýr aftur og klárar tímabilið með Grindavík Uppgjörið: Þór Þ - Keflavík 78 - 98 | Keflavíkurhraðlestin brunaði heim með öll stigin Shabazz látinn fara frá Grindavík Sjá meira