Emil og Birkir á bekknum á Ítalíu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. mars 2014 16:26 Emil í leik með Hellas Verona. Vísir/Getty
Emil Hallfreðsson kom ekkert við sögu hjá Hellas Verona þegar liðið tapaði 2-0 fyrir Parma á útivelli í dag. Eftir leikinn er Parma þremur stigum á undan Verona í sjötta sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar.Birkir Bjarnason sat sömuleiðis allan tímann á varamannabekknum hjá Sampdoria sem vann góðan heimasigur á Livorno, 4-2. Birkir hefur lítið komið við sögu hjá Sampdoria að undanförnu, en hann hefur ekki verið í byrjunarliðinu síðan í bikarleik gegn Roma 9. janúar. Juventus styrkti stöðu sína á toppnum A enn frekar með sigri á Fiorentina, 1-0. Ganamaðurinn Kwadwo Asamoah skoraði eina mark leiksins á 42. mínútu. Þetta var fjórði sigurleikur Juventus í röð í deildinni og liðið situr í efsta sæti með 72 stig, 14 stigum á undan Roma sem heimsækir Napoli í kvöld í stórleik umferðarinnar á Ítalíu. Fiorentina situr eftir sem áður í fjórða sæti, sjö stigum frá Meistaradeildarsæti. Það gengur lítið hjá Clarence Seedorf og félögum í AC Milan þessa dagana. Um síðustu helgi tapaði liðið fyrir Juventus og í gær laut Milan í lægra haldi fyrir Udinese á útivelli, en markahrókurinn Antonio Di Natale tryggði sínum mönnum stigin þrjú með eina marki leiksins um miðbik seinni hálfleiks. Milan situr sem stendur í 10. sæti Serie A, fjórum stigum á undan Udinese sem er í því 13.Úrslit dagsins: Juventus – Fiorentina 1-0 Bologna – Sassuolo 0-0 Chievo – Genoa 2-1 Internazionale – Torino 1-0 Lazio – Atalanta 0-1 Parma – Verona 2-0 Sampdoria – Liverno 4-2
Ítalski boltinn Mest lesið „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Fótbolti Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ Fótbolti Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Fótbolti Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda Fótbolti „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Fótbolti Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Körfubolti „Get ekki beðið um mikið meira“ Fótbolti Fleiri fréttir Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ „Get ekki beðið um mikið meira“ Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda „Langt síðan við unnum fótboltaleik“ „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Tíu tékkar réðu ekki við Englendinga Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Stressaður Arnar verði að vinna: „Er þetta of flókið?“ „Það er ekkert grín að skora fimm mörk í landsleik“ „Við ætlum bara að klára okkar og gera það sem við mögulega getum“ Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir „Þýðir ekkert að væla yfir stöðunni“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Þakklátur Gylfi Þór byrjar í kvöld: „Núna er þetta öðruvísi“ Gylfi Þór kemur inn í byrjunarlið Íslands Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane 50 Íslendingar meðal 8.500 áhorfenda Arnar fái silkihanskameðferð: „Um hvað ertu að tala?“ Leikdagur í Lúx: Rodrigues er fífl City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Ætlar að dreifa fé í aðdraganda kosninga Líklegra að Ísland verði í næstneðsta flokki Fluttur á sjúkrahús með alvarlega áverka eftir slys í mötuneyti Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Heimir gaf frí Sjá meira