NBA í nótt: Philadelphia jafnaði met með 26. tapinu í röð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. mars 2014 09:01
Philadelphia 76ers er nú komið í sögubækurnar í NBA-deildinni eftir 26. tap liðsins í röð.Houston vann Philadelphia, 120-98, þar sem James Harden var með 26 stig, tíu fráköst og tíu stoðsendingar. Það var hans önnur þrefalda tvenna á ferlinum. Philadelphia reyndi að halda í við Houston í upphafi leiksins en heimamenn stungu af í öðrum leikhluta og litu aldrei um öxl. Með þessu tapi jafnaði Philadelphia met Cleveland sem tapaði 26 leikjum í röð tímabilið 2010-11. Liðið getur eignast metið með húði og hári á morgun er liðið leikur gegn Detroit.Portland vann Atlanta, 100-85, en þar með tapaði síðarnefnda liðið enn einum leiknum og gaf þar með eftir í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni í austurdeildinni. Þetta var fimmta tap Atlanta í röð sem er í áttunda sæti deildarinnar. New York Knicks kemur svo í humátt á eftir.LaMarcus Aldridge skoraði 25 stig og tók sextán fráköst fyrir Portland sem hafði tapað þremur leikjum í röð.LA Clippers vann Dallas, 109-103, eftir að hafa verið tíu stigum undir í fjórða leikhluta. Chris Paul skoraði 31 stig fyrir Clippers. Þá vann Milwaukee sigur á LA Lakers, 108-105, en bæði lið eru í hópi verstu liða deildarinnar í ár.Úrslit næturinnar: Atlanta - Portland 85-100 Houston - Philadelphia 120-98 Milwaukee - LA Lakers 108-105 Dallas - LA Clippers 103-109
NBA Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Löggan þorði ekki að þiggja miða Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Náði loksins titlinum sem hana dreymdi um Golf Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira