Gísli Marteinn skilur umbúðir eftir í búðum Kjartan Atli Kjartansson skrifar 24. mars 2014 14:34 Gísli Marteinn segist yfirleitt skilja það rusl sem hann getur eftir í búðum. Vísir/Vilhelm
Sjónvarpsmaðurinn og fyrrum borgarfulltrúi, Gísli Marteinn Baldursson, skilur oft umbúðir af matvælum sem hann kaupir eftir í búðum. Á föstudag keypti Gísli Marteinn eggaldin í Melabúðinni. Hvert og eitt þeirra var pakkað inn í plastumbúðir. Gísli setti mynd af þeim á vefinn og spurði hver tilgangurinn með þessu mikla magni umbúða væri. Facebook-síðan Bylting gegn umbúðum hefur vakið mikla athygli að undanförnu. Formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar tók þátt í átaki til þess að vekja athygli á síðunni og mætti naglakkaður á bæjarstjórnarfund. Gísli Marteinn talaði einnig um síðuna í síðasta þætti af Sunnudagsmorgni, sem var sýndur í gær. „Það er töluverð vakning í þessum málum núna,“ segir Gísli Marteinn í samtali við Vísi.Skilur gjarnan ruslið eftir Gísli Marteinn segist yfirleitt skilja það rusl sem hann getur eftir í búðum. „Ég reyni fyrst og fremst að minnka ruslið sem kemur frá mér. Ég vil auðvitað lika vekja athygli eigenda verslanna á þetta mikla magn umbúða,“ segir Gísli Marteinn. Myndin sem Gísli birti á vefnum, af vel innpökkuðum eggaldinum úr Melabúðinni. „Ég vil samt vekja athygli á því að ég er mikill aðdáandi Melabúðarinnar og finnst eigendur og starfsfólk standa sig vel í umhverfismálum og það er alltaf vel tekið í það þegar ég skil umbúðir af vörum eftir í búðinni,“ segir Gísli Marteinn.Óskynsamleg nýting á landi Öskuhaugar eru óskynsamleg nýting á landi að mati Gísla Marteins. „Ef ég ætti landskika myndi ég nota hann í annað en öskuhauga. Mér finnst að við eigum að nota landið í annað,“ segir Gísli og vekur athygli á því að ekki megi byggja á landi þar sem rusl hefur verið grafið í jörðu. „Þó að ruslið sé grafið í jörðu má ekki byggja á landinu í fjölda ára. Það verður ákveðin gasmyndun og það getur hreinlega verið sprengjuhætta vegna þess,“ útskýrir Gísli.Öðruvísi í Evrópu Gísli Marteinn bendir á hvernig svona málum sé háttað í Evrópu. „Þegar ég bjó í Þýskalandi 1996 voru gámar fyrir utan verslanir þar sem fólk gat losað sig við umbúðir. Til dæmis tíðkaðist að henda pappakassanum utan af morgunkorni og taka bara pokann með sér heim. Síðan var morgunkornið gjarnan geymt í glerílátum.“ Gísli segir verslanir í Evrópu einnig taka við drykkjarílátum. „Víða í Evrópu er verslanir hreinlega skyldaðar til þess að vera með móttöku fyrir drykkjarílát. Ef menn kaupa sér til dæmis kassa af bjór geta þeir komið með hann á sama stað og fengið endurgreitt fyrir umbúðirnar og jafnvel notað það upp í kaup á nýjum bjór,“ útskýrir hann.Nýttum hluti betur áður „Ég er nógu gamall til að muna eftir því þegar maður keypti kók í gleri og borgaði bara fyrir innihaldið – drakk kókið í búðinni og skildi flöskuna eftir,“ segir Gísli Marteinn og heldur áfram: „Við nýttum hlutina betur hér áður fyrr. En svo gleymdum við því eða nenntum því ekki. Nú finnur maður að þetta er farið að skipta fólk meira máli aftur. Það er orðin töluverð vakning í þessum málum.“ Hann bendir á að rusl sem frá okkur fari sé meira og minna grafið í jörðu. „Þetta er ævintýralegt magn af rusli sem fer frá okkur og er grafið í jörðu. Plastið er allra verst. Það samlagast ekki jörðinni og frá því seitlast efni sem fara út í sjó,“ segir Gísli Marteinn.
Tengdar fréttir "Ekkert hættulegt að mæta með naglalakk á bæjarstjórnarfundi" Formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, Gunnar Axel Axelsson svaraði áskorun og vakti athygli á óþarflega miklum umbúðum utan um matvæli og aðrar vörur hér á landi. 24. mars 2014 11:51 Mest lesið Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Loks komnar af átakasvæðinu: „Átján tímar af þroti“ Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Innlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Upptaka náðist af alvarlegu umferðarslysi Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Fleiri fréttir Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Oddvitinn lætur gott heita í Mosfellsbæ Evrópuhiti, Bjarni Ben og bílastæði Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Þau verða í efstu tíu sætunum á lista Pírata Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Hefur setið tvo af þremur borgarstjórnarfundum frá því að hann skipti um lið Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Bein útsending: ESB-ballið byrjar á Alþingi Niðurrif ónýtra húsa í Grindavík hafið Landbúnaðarstefna ESB henti íslenskum landbúnaði illa Enginn sem hefur stjórn á því hvar olíuverð endar Bjóða upp á tjaldsvæði inni Tekist á um þjóðaratkvæði á þingi í dag og olíuverð í hæstu hæðum Ætlar ekki að taka úrslitunum sem höfnun Bein útsending: Bjarni og fleiri ræða almannatryggingafrumvarpið Gæsluvarðhald meints barnaníðings framlengt „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Stefnir í norðanhríð í vikunni Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Vilja launað leyfi fyrir þolendur ofbeldis og vernd gegn uppsögn Faldi sig inni í fataskáp þegar lögregluna bar að garði Gildandi kjarasamningar ávísun á áframhaldandi verðbólgu Sjá meira
"Ekkert hættulegt að mæta með naglalakk á bæjarstjórnarfundi" Formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, Gunnar Axel Axelsson svaraði áskorun og vakti athygli á óþarflega miklum umbúðum utan um matvæli og aðrar vörur hér á landi. 24. mars 2014 11:51