Stormur á vestanverðu landinu Bjarki Ármannsson skrifar 17. apríl 2014 18:04 Þessi mynd var tekin við Grundarfjarðarhöfn fyrir stuttu. Mynd/Tómas Logi Hallgrímsson
Gríðarmikið hvassviðri gengur nú yfir vestanvert landið og má jafnvel tala um storm. Að sögn Veðurstofu Íslands hefur vindhraði á norðanverðu Snæfellsnesi mælst 25 til 30 metrar á sekúndu. Þar sem hlýnað hefur samhliða rokinu og hiti farið upp í eitt til fimm stig, fylgir hvassviðrinu nú slydda og rigning. Á Grundarfirði hefur vindhraði farið upp í 28 metra á sekúndu en meðfylgjandi mynd er tekin við Grundarfjarðarhöfn fyrir stuttu. „Að vera í bílnum niðri við höfn var bara eins og að vera í bílaþvottastöð,“ segir Tómas Logi Hallgrímsson sem tók myndina, en flóð er um þessar mundir í Grundarfirði. Vindhraði er einnig mikill á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli en þar hefur hann mælst heilir 40 metrar á sekúndu í sviptingum. Að sögn Veðurstofu mun stormurinn að mestu herja á Norðvesturland í nótt og fram á morgun.Uppfært: Meðfylgjandi myndband tók Tómas Logi upp við Grundarfjarðarhöfn og setti á vefsíðuna YouTube. Það gefur nokkuð góða mynd af aðstæðum.
Veður Mest lesið Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Innlent Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Innlent Reyndu að ræna hraðbanka Innlent Tíu ára drengur sagður látinn eftir bílslys á Ítalíu Erlent Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Innlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Erlent Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Erlent Komu hesti til bjargar úr gjótu Innlent Fleiri fréttir Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Búið að opna Holtavörðuheiði á ný Þungar vikur framundan Skilaréttur neytenda ríkari ef varan er keypt á netinu Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Hæstiréttur fer beint í búvörulagamálið Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Grímuskylda og ósáttir vínsalar Holtavörðuheiði enn lokuð Reyndu að ræna hraðbanka Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Sjá meira