Stigametið féll á Ítalíu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. maí 2014 15:43 Ítalíumeistarar Juventus fagna þriðja markinu gegn Cagliari. Vísir/Getty
Þremur leikjum er lokið í lokaumferð ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Meistarar Juventus unnu 3-0 sigur á Cagliari á heimavelli, þar sem öll mörkin komu í fyrri hálfleik. Fyrsta markið var sjálfsmark Marcos Silvestri, markvarðar Sardiníuliðsins, en hin tvö skoruðu Fernando Llorente og Claudio Marchisio. Með sigrinum rauf Juventus 100 stiga múrinn og setti um leið nýtt stigamet í Serie A. Juventus endaði tímabilið með 102 stig, en gamla metið átti Inter sem fékk 97 stig tímabilið 2006-07. Roma beið lægri hlut fyrir Genoa, 1-0, á útivelli, en Rómverjar töpuðu þremur síðustu leikjum sínum á tímabilinu. Ioannis Fetfatzidis skoraði eina mark leiksins. Catania vann Atalanta 2-1 á heimavelli. Sigurinn skipti litlu máli fyrir Catania sem var þegar fallið úr deildinni. Fransesco Lodi og Gonzalo Bergessio skoruðu mörk Sikileyjarliðsins, en Moussa Koné mark Atalanta. Í gær gerðu Udinese og Sampdoria 3-3 jafntefli. Antonio Di Natele skoraði þrennu í sínum síðasta leik á ferlinum, en hann verið í herbúðum Udinese frá árinu 2004.Stefano Okaka, Éder og Roberto Soriano skoruðu mörk Sampdoria. Birkir Bjarnason sat allan tímann á bekknum, en hann hefur lítið spilað fyrir Sampdoria á síðustu vikum.
Ítalski boltinn Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Íslenski boltinn Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Fleiri fréttir Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Sjá meira