Hinn 36 ára gamli Kobe Bryant stigahæsti maður NBA í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. nóvember 2014 10:00 Kobe Bryant. Vísir/Getty
Kobe Bryant er orðinn 36 ára gamall og á sínu nítjánda tímabili en hann er engu að síður sá leikmaður sem hefur skorað flest stig að meðaltali í NBA-deildinni í körfubolta í vetur. Bryant er með 26,4 stig að meðaltali í leik í fyrstu fimmtán leikjum Los Angeles Lakers og er að skora stigi meira að meðaltali en næsti leikmaður sem er hinn öflugi og 21 árs gamli Anthony Davis hjá New Orleans Pelicans. LeBron James hefur skorað 25,3 stig fyrir Cleveland Cavaliers og gæti komið KObe úr toppsætinu haldi hann áfram á sömu braut og í undanförnum leikjum. Kobe Bryant hefur verið stigahæsti leikmaður Lakers-liðsins í tólf af fimmtán leikjum liðsins en hann hefur verið óhræddur við að skjóta á körfuna í byrjun tímabilsins. Bryant er enn á ný á góðri leið með að skrifa NBA-söguna því enginn leikmaður eldri en 25 ára hefur náð að skora yfir 26 stig að meðaltali í leik. Karl Malone á metið en hann skorað 25,5 stig að meðaltali fyrir Utah tímabilið 1999 til 2000. Kareem Abdul-Jabbar skoraði 23,4 stig að meðaltali tímabilið 1985-86 en þá var hann 38 ára. Besta tímabil Michael Jordan eftir að hann varð eldri en 35 ára var þegar hann skoraði 22,9 stig að meðaltali með Washington Wizards tímabilið 2001-02.Stigahæstu leikmenn NBA-deildarinnar í vetur: 1. Kobe Bryant, Los Angeles Lakers 26,4 2. Anthony Davis, New Orleans Pelicans 25,4 3. LeBron James, Cleveland Cavaliers 25,3 3. James Harden, Houston Rockets 25,3 5. Stephen Curry, Golden State Warriors 24,2 6. DeMarcus Cousins, Sacramento Kings 23,5 7. Carmelo Anthony, New York Knicks 23,2 8. Klay Thompson, Golden State Warriors 21,7 8. Chris Bosh, Miami Heat 21,7 10. Blake Griffin, Los Angeles Clippers 21,6Flest stig í leik á tímabili eftir að leikmaður varð 36 ára:1. Kobe Bryant, Los Angeles Lakers 2014-15 (36 ára) 26,4* 2. Karl Malone, Utah Jazz 1999-2000 (36 ára) 25,5 2. Kareem Abdul-Jabbar, LA Lakers 1985-86 (38 ára) 23,4 4. Karl Malone, Utah Jazz 2000-2001 (37 ára) 23,2 5. Michael Jordan, Washington Wizards 2001-02 (38 ára) 22,9* Mikið eftir af tímabilinu.
NBA Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira