Blatt: Þurfum meira af ást í Cleveland Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. nóvember 2014 23:00 Kevin Love og Lebron James. Vísir/AP
David Blatt, þjálfari Cleveland Cavaliers, hefur ekki eins miklar áhyggjur af sóknarleik liðsins og framherjinn Kevin Love sem var frekar pirraður eftir tapið á móti San Antonio Spurs í vikunni. „Við spilum sérstök kerfi fyrir Kevin og fyrir hina leikmennina líka," sagði David Blatt eftir æfingu. „Við áttum auðveldara með að skora fyrr á tímabilinu en það var samt samskonar sóknarleikur í gangi. Ég er því ekki viss um að þetta sé eitthvað tengt því að Love fái boltann ekki nógu mikið," sagði David Blatt. Kevin Love hefur ekki skorað meira en 13 stig í þremur af síðustu fjórum leikjum Cleveland-liðsins. Hann hefur ekki skorað minna en þessi 10 stig sem hann skilaði í tapinu á móti San Antonio Spurs „Við viljum allir hjálpa Kev. Hann þarf að komast meira inn í leik liðsins og hann þarf líka að koma sér sjálfum meira inn í sóknarleikinn. Það er okkar starf að hjálpa honum að gera það," sagði Blatt. Kevin Love tók bara eitt skot í lokaleikhlutanum á móti San Antonio Spurs en hann hefur aðeins tekið 33 af 131 skoti sínu á tímabilinu nálægt körfunni. Á sama tíma hefur hinn 208 sentímetra hái Love tekið 54 þriggja stiga skot. Love skoraði 26,1 stig að meðaltali með Minnesota Timberwolves í fyrra en er með 16,7 stig að meðaltali í leik á fyrsta tímabili sínu með Cleveland. Hann er því að skora næstum því tíu stigum minna að meðaltali í leik. „Ég tel að ef allt liðið nær fleiri skotum á körfuna þá fái hann fleiri skot," sagði Blatt sem vill auka hraðann í leik liðsins og fækka töpuðu boltunum. Love er ekki bara að taka færri skot í leik (13,1 á móti 18,5) því hann er líka að hitta mun verr. Love var með 45,7 prósent skotnýtingu í fyrra en skotnýtingin er "aðeins" 38,9 prósent í vetur.
NBA Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira