NBA-lið spiluðu á rangar körfur í nótt - myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. desember 2014 15:15 Vísir/AP
Dómarar leiks Philadelphia 76ers og Minnesota Timberwolves í NBA-deildinni í körfubolta þurftu að þurrka út sextán sekúndur og hefja leikinn að nýju í nótt eftir að leikmenn liðanna týndu hreinlega áttum í upphafi leiks. Dómararnir áttuðu sig á því eftir sextán sekúndna leik að liðin voru að sækja á rangar körfur. Þeir voru þá búnir að dæma eina villu og Sixers-maðurinn Henry Sims var að gera sig líklegan til að taka tvö víti þegar tvær grímur runnu á dómarana. Eftir stuttan dómarafund var ákveðið að þurrka út fyrstu sextán sekúndurnar og hefja leikinn á nýju með þeirri undantekningu að liðin sóttu nú á réttar körfur. Það er hægt að sjá myndband með þessari furðulegu byrjun á NBA-síðunni. Philadelphia 76ers var búið að tapa sautján fyrstu leikjum sínum á tímabilinu fyrir leikinn í nótt en tókst að landa sínum fyrsta sigri sínum á móti Minnesota Timberwolves, 85-77.
NBA Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira