Toronto og Memphis eiga bestu þjálfarana Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. desember 2014 10:30 Dave Joerger, þjálfari Memphis Grizzlies, sem var með besta sigurhlutfall allra liða í fyrsta mánuði NBA-tímabilsins. Vísir/Getty
Dwane Casey, þjálfari Toronto Raptors, og Dave Joerger, þjálfari Memphis Grizzlies, voru valdir bestu þjálfarar nóvembermánaðar í NBA-deildinni í körfubolta en bæði liðin hafa byrjað tímabilið frábærlega. Þeir Dwane Casey og Dave Joerger eru vissulega ekki frægustu nöfnin meðal þjálfara NBA-deildarinnar en eru báðir búnir að byggja upp lið sem eru til alls líkleg í vetur.Dwane Casey var valinn sá besti í Austurdeildinni en Toronto Raptors liðið vann 13 af 17 leikjum sínum í nóvember (og október) sem gerir 76,5 prósent sigurhlutfall. Toronto vann meðal annars fimm leiki í röð frá 4. til 11. nóvember þar sem liðið vann með 14 stigum að meðaltali í leik. Liðið vann síðan sex leiki í röð frá 15. til 26. nóvember með 16 stigum að meðaltali í leik.Dave Joerger var valinn sá besti í Vesturdeildinni en Memphis Grizzlies vann 15 af 17 leikjum sínum í nóvember (og október) sem gerir 88,2 prósent sigurhlutfall og var besti árangurinn í allri NBA-deildinni á þessum tíma. Grizzlies-liðið vann meðal annars alla átta heimaleiki sína á þessu tíma og alla 11 leiki sína á móti liðum úr Vesturdeildinni.Aðrir sem komu til greina voru Mike Budenholzer (Atlanta Hawks), Tom Thibodeau (Chicago Bulls), Rick Carlisle (Dallas Mavericks), Steve Kerr (Golden State Warriors), Kevin McHale (Houston Rockets), Doc Rivers (Los Angeles Clippers), Jason Kidd (Milwaukee Bucks) , Terry Stotts (Portland Trailblazers), Gregg Popovich (San Antonio Spurs) og Randy Wittman (Washington Wizards).
NBA Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira