Kobe Bryant að hugsa um að taka sér frí Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. desember 2014 10:45 Kobe Bryant. Vísir/Getty
Kobe Bryant er mögulega á leiðinni í frí til að hlaða batteríin en hann átti ekki góðan leik í nótt þegar Los Angeles Lakers tapaði enn einum leiknum í NBA-deildinni í nótt. „Ég á ekki mikið val ef skrokkurinn er eins og hann er núna," sagði Kobe Bryant við fjölmiðla eftir leikinn á móti Sacramento Kings en Svarta Mamban klikkaði þá á 22 af 30 skotum sínum og tapaði að auki 9 boltum. „Þú verður að vera klókur. Miðað við þá vinnu sem ég legg á mig til að hafa skrokkinn tilbúinn þá er varla neitt annað í boði en hvíld miðað við hvað hann er aumur núna," sagði Bryant. Kobe Bryant ætlar að skoða stöðuna í dag en næsti leikur Lakers er á móti Golden State Warriors annað kvöld. Liðið spilar síðan Chicago Bulls á útivelli á jóladag. Bryant er að skorað 24,6 stig á 35,2 mínútum í leik á þessu tímabili en hann er aðeins að hitta úr 37,7 prósent skota sinna. Hann hefur aldrei hitt úr minna en 40 prósent skota sinna á einu tímabili. Bryant hefur spilað alla 27 leiki Los Angeles Lakers liðsins til þessa en liðið hefur aðeins unnið átta þeirra.
NBA Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira