Stór upplifun fyrir marga keppendur Stefán Árni Pálsson skrifar 7. febrúar 2014 07:00 Íslensku keppendurnir verða viðstaddir setningarathöfnina á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí í kvöld. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff forsetafrú eru með í för og verða einnig viðstödd athöfnina. mynd/ísí
Ólympíuleikarnir í Sotsjí verða settir í kvöld í Rússlandi og má gera ráð fyrir stórkostlegri setningarathöfn en leikarnir eru þeir dýrustu í sögunni. Talið er Rússar hafi varið sex þúsund milljörðum í þessa 22. Vetrarólympíuleika. Vetrarólympíuleikarnir í Sotsjí standa yfir til 23. febrúar. Keppendur frá Íslandi verða fimm talsins en samtals verða 11 aðilar á vegum ÍSÍ á Vetrarólympíuleikunum. Íslensku keppendurnir eru allir mættir til Sotsjí og hafa komið sér fyrir í Ólympíuþorpinu en þeir eru Einar Kristinn Kristgeirsson, Brynjar Jökull Guðmundsson, Helga María Vilhjálmsdóttir, Erla Ásgeirsdóttir og Sævar Birgisson sem verður fánaberi í kvöld. Móttökuhátíð fór fram fyrir íslenska hópinn í Ólympíuþorpinu í Derevnja í gær en á hátíðinni eru þjóðsöngvar viðeigandi landa leiknir og lönd boðin velkomin á leikana. Á hátíðinni í gær voru þrjú lönd boðin velkomin á leikana og Íslendingarnir fóru fyrir okkar þjóð.Forsetinn viðstaddur „Forseti Íslands og forsetafrúin voru viðstödd móttökuhátíðina sem var mjög skemmtileg upplifun fyrir hópinn. Íslenska fánanum var flaggað og voru í raun mikil hátíðarlæti,“ segir Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ. Leikinn var þjóðsöngur Íslands og þjóðfáninn dreginn að húni á móttökuhátíð í Ólympíuþorpinu. Að því loknu heimsóttu forsetahjónin íbúðir íslensku keppendanna, skoðuðu Ólympíuþorpið og snæddu hádegisverð með íslensku keppendunum í matsal þorpsins þar sem fjölbreyttir réttir víða að úr veröldinni eru á boðstólum. Móttökuathöfninni stjórnaði borgarstjóri Ólympíuþorpsins, Svetlana Zhurova, fyrrum Ólympíumeistari í skautahlaupi, og fylgdi hún síðan forsetahjónum og íslensku keppendunum um Ólympíuþorpið sem er í Kákasusfjöllum skammt frá Sotsjí. Í gær sátu forsetahjónin hátíðarkvöldverð í boði forseta Alþjóða Ólympíunefndarinnar, Thomas Bach. „Þetta er svona ákveðin hátíð þar sem þjóðirnar eru boðnar velkomnar og þeirra þjóðsöngvar fá að hljóma. Krakkarnir voru virkilega ánægð með þessa hátíð og heppnaðist hún vel. Borgarstjóri Sotsjí ávarpaði keppendur og bauð þau velkomin til leiks.“ Líney segir að fulltrúar okkar Íslendinga séu í góðu standi og stemningin í hópnum frábær. „Keppendur komu til Sotsjí í gær og byrja síðan að æfa á morgun. Aðstæður eru mjög flottar og fínar og hefur hópurinn komið sér vel fyrir.“ Setningarhátíðin fer fram í dag og hefst hún klukkan fjögur að íslenskum tíma. Hún verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og Vísi.Mikil tilhlökkun „Það er mikil eftirvænting fyrir setningarathöfninni og allir í hópnum fullir tilhlökkunar. Síðan þegar henni er lokið tekur alvaran við. Það vakti síðan mikla lukku í dag þegar keppendur fengu allir gefins mjög flottan Samsung-snjallsíma frá Alþjóða Ólympíunefndinni.“ „Þetta er mjög stór upplifun fyrir marga keppendur sem eru að fara á sína fyrstu leika,“ segir Andri Stefánsson, aðalfararstjóri hópsins og jafnframt sviðsstjóri afreks- og ólympíusviðs ÍSÍ. „Fyrsti dagurinn fór mikið í það að meðtaka stemninguna og venjast því að vera á Ólympíuleikum, það gerist ekki á hverjum degi. Sævar [Birgisson] nær að æfa smá í dag en hinir byrja síðan á morgun. Keppendur fara fyrst í það að skoða aðstæður og venjast þeim, en þau hefja ekki keppni alveg strax og fara því nokkuð rólega af stað. Það er einnig mikilvægt að ná úr sér ferðaþreytunni.“
Vetrarólympíuleikar 2014 í Sochi Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti Fleiri fréttir Harður gagnrýnandi Trumps við hlið hans á úrslitaleik HM Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Íslensku strákarnir í undanúrslit Bríet Fjóla keypt til Þróttar Blatter baunar aftur á FIFA: „Lengsta hlé í sögu fótboltans“ Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Stuttu pútti frá besta hring sögunnar Svarar Romero fullum hálsi: „Veit um hvað ég er að tala“ Yngri bróðir með frábæra ferilskrá tekur slaginn með KA Barnaleg mistök, markasjúkir FH-ingar og risastór helgi „Mercedes ætti að vera með mun meira forskot“ Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Bowen heldur tryggð eftir fallið Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Loftgæðin hættuleg leikmönnum Heimsmeistarar fá hring Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun „Of mörg heimskuleg mistök“ Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Flugóður forseti FIFA Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? „Fjögur ár eru langur tími“ Dagskráin: Opna breska risamótið og Formúla 1 frá Belgíu „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Ari Leifsson í Stjörnuna Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Sjá meira