Menning

Íslenskar bækur eftirsóttar í Mið-Austurlöndum

Skáldsaga Einars Más Guðmundssonar, Fótspor á himnum, kemur út á arabísku um þessar mundir og var Einari Má af því tilefni boðið á bókamessuna.
Skáldsaga Einars Más Guðmundssonar, Fótspor á himnum, kemur út á arabísku um þessar mundir og var Einari Má af því tilefni boðið á bókamessuna. Mynd/Réttindastofa Forlagsins
Hvert íslenska bókmenntaverkið á fætur öðru er nú gefið út á arabísku. Réttindastofa Forlagsins er nýkomin af bókamessunni í Abu Dhabi þar sem undirritaðir voru samningar um arabíska útgáfu á Sögunni af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason, Blóðhófni eftir Gerði Kristnýju og Valeyrarvalsinum eftir Guðmund Andra Thorsson.



Réttindastofan hefur að undanförnu samið við arabísk forlög um útgáfu á verkum ýmissa höfunda sinna. LoveStar eftir Andra Snæ Magnason kemur út á næstunni, Mýrin, Grafarþögn og Röddin eftir Arnald Indriðason hafa þegar komið út á arabísku, sem og Elsku besti pabbi og Mamma er best eftir Björk Bjarkadóttur, Gæludýrin eftir Braga Ólafsson, Svanurinn eftir Guðberg Bergsson, Brekkukotsannáll eftir Halldór Laxness og Skugga-Baldur eftir Sjón. Tröllakirkja eftir Ólaf Gunnarsson er væntanleg fljótlega, sem og Z ástarsaga eftir Vigdísi Grímsdóttur og Flateyjargáta eftir Viktor Arnar Ingólfsson.



Skáldsaga Einars Más Guðmundssonar, Fótspor á himnum, kemur enn fremur út á arabísku um þessar mundir og var Einari Má af því tilefni boðið á bókamessuna, þar sem hann ræddi verk sín og íslenskar bókmenntir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.