Tólfti sigur Atlanta í röð | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. janúar 2015 10:44 Korver var heitur fyrir utan þriggja stiga línuna í nótt. vísir/afp
Átta leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Það var mikið skorað í Texas-slag Golden State Warriors og Houston Rockets, þar sem Golden State fór með sigur af hólmi, 131-106. Stephen Curry og Klay Thompson fóru á kostum í liði Golden State og skoruðu báðir 27 stig. Curry bætti auk þess sjö fráköstum og 11 stoðsendingum við. Dwight Howard skoraði mest fyrir Houston, eða 23 stig, en miklu munaði um að James Harden náði sér ekki á strik. Harden, sem er með 26,6 stig að meðaltali í leik í vetur, hitti illa og skoraði aðeins 12 stig. Atlanta Hawks vann sinn 12. leik í röð þegar liðið sótti Chicago Bulls heim. Lokatölur 107-99, Atlanta í vil sem er með bestan árangur allra liða í Austurdeildinni. Kyle Korver var öflugur gegn sínum gömlu félögum og skilaði 24 stigum fyrir Haukana, en hann hitti úr sjö af níu þriggja stiga skotum sínum. Derrick Rose var með 23 stig, átta fráköst og 10 stoðsendingar hjá Chicago sem er í 4. sæti Austurdeildarinnar. Pau Gasol átti einnig fínan leik og skilaði 22 stigum og 15 fráköstum fyrir Chicago. Þá vann Memphis Grizzlies góðan fjögurra stiga sigur á Portland Trail Blazers, 98-102, þar sem Zach Randolph fór mikinn með 20 stig og 15 fráköst. Memphis er í 3. sæti Vesturdeildarinnar, sæti fyrir neðan Portland. Bæði lið eru þó talsvert langt á eftir toppliði Golden State sem hefur aðeins tapað sex af 38 leikjum sínum í vetur.Úrslitin í nótt: Charlotte 80-71 Indiana Detroit 107-89 Philadelphia Chicago 99-107 Atlanta Houston 106-131 Golden State Brooklyn 90-99 Washington Memphis 102-98 Portland Denver 105-113 Minnesota Sacramento 108-117 LA ClippersKyle Korver var í stuði í nótt Það sama má segja um Stephen Curry og Klay Thompson Andrew Wiggins skoraði 31 stig í sigri Minnesota
NBA Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira