Körfubolti

Garnett skallaði Howard

Garnett er hér búinn að missa stjórn á skapi sínu.
Garnett er hér búinn að missa stjórn á skapi sínu. vísir/getty
Það sauð upp úr í leik Brooklyn Nets og Houston Rockets í NBA-deildinni í nótt.

Þá skallaði Kevin Garnett, leikmaður Nets, Dwight Howard strax í fyrsta leikhluta.

Þeir byrjuðu á að ýta hver öðrum en svo brjálaðist Garnett, kastaði boltanum í Howard og skallaði hann svo. Í kjölfarið ýtti hann Howard frá sér en Howard svaraði með því að slá Garnett í hnakkann.

Garnett var rekinn úr húsi og fékk ekki að hitta fjölmiðlamenn eftir leikinn.

Howard vildi ekkert tala um slagsmálin eftir leikinn sem Houston vann.

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×