Djúp lægð upp að vesturströnd landsins Stefán Árni Pálsson skrifar 14. febrúar 2015 09:35 Búast má við snörpum vindhviðum, 35-45 m/s á N-verðu Snæfellsnesi, undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi. vísir/vilhelm
Djúp lægð kemur hraðbyr upp að vesturströnd landsins í dag og með henni fylgja talsverð hlýindi og úrkoma. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Búast má við suðaustan 15-25 m/s yfir daginn og mikilli rigningu SA- og A-til, eins á norðanverðu Snæfellsnesi. Búast má við snörpum vindhviðum, 35-45 m/s á N-verðu Snæfellsnesi, undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi. Einnig má búast við mjög snörpum vindhviðum við fjöll á Austfjörðum og Austurlandi, og eins á Tröllaskaga, einkum frá því síðdegis og fram á nótt. Spáð er vatnavöxtum N-til á Snæfellsnesi, SA-lands og á S-verðum Austfjörðum þegar nýfallinn snjór bráðnar ásamt því að talsverð eða mikil úrkoma fellur í dag. Greiðfært er á Hellisheiði og Þrengslum. Hálkublettir eða snjóþekja allvíða á Suðurlandi, ekki síst í uppsveitum. Á Vesturlandi er víða hálka og eitthvað um snjóþekju. þungfært er á Fróðárheiði. Á Vestfjörðum er víða snjóþekja og snjókoma en þæfingsfærð með snjókomu er á Steingrímsfjarðarheiði, Klettshálsi og Kleifaheiði. Vegir eru víða auðir á Norðurlandi eða aðeins með hálkublettum en sumstaðar er éljagangur. Hálka er í Víkurskarði. Á Austurlandi er víða snjóþekja og snjókoma. Hálka er á Oddsskarði, Fagradal, Jökuldal á Möðrudalsöræfum. Greiðfært frá Höfn suður í Öræfasveit. Á Suðurlandinu er þjóðvegur 1 nánast auður.
Veður Mest lesið Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Erlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Fleiri fréttir Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Sjá meira