Mótmæli hentuðu ekki friðarsinnanum
Jón Gnarr segist í viðtalinu vera friðarsinni og því hafi búsáhaldarbyltingin ekki hentað honum til að koma á breytingum á Íslandi eftir bankahrunið árið 2008. Hann ákvað í staðinn að stofna Besta flokkinn þar sem hann gerði grín að kosningaloforða stjórnmálaflokka og lofaði meðal annars fíkniefnalausu Alþingi árið 2020.
„Það eru afar fáir grínistar í dag sem eru taldir hættulegir og það er draumur hvers grínista, að dansa á línunni, vera hættulegur. Ég fór hins vegar með grínið á þetta stig og yrði ekki hissa ef við sæjum grínista hópast í pólitíkina,“ segir Jón Gnarr í viðtalinu.
Tók ákvarðanir sem pólitíkusar eru hræddir við
Jón segist sem borgarstjóri hafa þurft að fara í sársaukafullan niðurskurð til að koma í veg fyrir að Reykjavíkurborg færi sömu leið og Detroit-borg eftir bankahrunið.
„Ég tók þær ákvarðanir sem enginn pólitíkus hefði þorað að taka því þeir óttast um orðstír sinn og feril. Þess vegna þarf pólitíska elítan að hverfa frá og mun gera það vegna þess að hún er ófær um að gera það sem þarf að gera,“ segir Jón Gnarr.
„Jöklarnir eru að bráðna“
Hann er spurður út í mögulegt forsetaframboð á Íslandi og segist Jón vera spurður að því daglega en svarar því að hann búi nú í Houston þar sem hann starfar við Rice-háskólann en hann segir hlutverk sitt þar að brúa bilið á milli annars vegar orku- og umhverfisrannsókna og hins vegar listar og miðla.
„Það eru margir haldnir ranghugmyndum um mjög mikilvæg málefni, þar á meðal ég. Ég er ekki alltaf viss hverju ég á að trú, hvað er staðreynd og hvað er uppspuni, en ég hef reynslu af pólitík og loftslagsbreytingar eru fyrst og fremst pólitískt mál. Við höfum mjög augljós merki um breytingar. Það er allt að hitna og jöklarnir eru að bráðna. Sumir þeirra hafa algjörlega horfið.“
Hann er í framhaldinu spurður álits um þá ákvörðun bandaríska þingsins að hafna frumvarpi þar sem staðfest er að loftslagsbreytingar af mannavöldum eru raunverulegar. „Þetta er svolítið eins og að vera greindur með lungnakrabbamein. Er það af því að ég reykti þegar ég var yngir? Það skiptir engu máli því þú ert með lungnakrabbamein.“
Vill vera lengur í Bandaríkjunum
Samningur Jóns Gnarr við Rice-háskólann er til einnar annar en hann er með atvinnuleyfi til þriggja ára í Bandaríkjunum. Hann segist hafa áhuga á frekari vinnu í Bandaríkjunum og hefur þegar hafið samstarf við Umbrella-leikhúshópinn sem ætlar að setja upp leikrit hans Hotel Volkswagen.
Sjá viðtalið í Houstonia hér.